Menntamál - 01.12.1941, Side 6

Menntamál - 01.12.1941, Side 6
100 MENNTAMÁL Flestir voru nemendurnir á fyrstu árum skólans búnir að ná þeim aldri og þroska, að þeir gátu stundað tiltölulega erfitt nám. Kennslan var afburða góð, því að Benedikt kunni snilld- arvel að útskýra ljóst og rökfast og gera viðfangsefnið skemmtilegt. En snjallastur þótti hann jafnan, er hann kenndi eftirlætisnámsgreinar sínar: málfræðina og sögu og bókmenntasögu. Skóli Benedikts fékk brátt orð á sig, og tóku þá yngri nemendur að sækja skólann, enda fjölgaði þeim ungling- um, sem barnaskólinn útskrifaði. Breyttust þá nokkuð kennsluhættir skólans og varð á öllu meiri bragur reglu- legs unglingaskóla. Á fyrstu árum unglingaskóla Benedikts stundaði hann jafnframt búskap og vann heima á sumrum að búi sínu í Garði í Kelduhverfi. Um þær mundir tók hann að semja skáldsögur undir rithöfundarnafninu Björn austræni og fékkst einnig nokkuð við ljóðagerð. Sögur hans nokkrar komu út árið 1910 og nefndi hann bókina Milli fjalls og fjöru, og nokkrum árum síðar smásögur, Andvörp. Það eru sveitalífssögur. Er yfir þeim fremur þungur blær, en stíll hans er sléttur og fagur sem líðandi tær straumur. Meðal sagna hans er undur fögur smásaga fyrir ungl- inga: Hefnd. Birtist hún fyrst í Nýjum kvöldvökum sem verðlaunasaga. Síðar ritaði hann kennslubók handa al- þýðuskólum og í heimahúsum: Þjóðskipulag íslendinga. Ýmislega fleira hefur Benedikt ritað og skal sérstaklega bent á málfræðiritgerð, er birtist í Menntamálum, 3. árg., 4. tbl. Hann átti meðal annars í handriti nokkra kafla af langri skáldsögu, sem honum entist ekki aldur né heilsa til að fullgera. Ljóðagerð sinni hélt Benedikt að mestu leyndri og taldi sig ekki vera ljóðskáld. En til eru þó eftir hann ljóðabrot og heil ljóð, sem teljast mega perlur að fegurð og skáld- skapargildi.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.