Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 13
MENNTAMÁL
107
Baraalefkvölluriim
a Akureyri
Barnaleikvellir eru fáir hér á landi og rekstur þeirra
ófullkominn. Þeir þyrftu þó að vera til í bæjum og stærri
kauptúnum. Og ef þeir væru þannig úr garði gerðir, að
börnin löðuðust að þeim, væri börnunum að nokkru forðað
frá óhreinum götum og allskonar óhollu slangri nokkurn
tíma árs.
Akureyrarbær hefur starfrækt barnaleikvöll átta undan-
farin sumur.
Vegna þess, að framkvæmd og tilhögun á þessum leik-
velli er með þeim hætti, að hún gæti e. t. v. orðið öðrum
stöðum til eftirbreytni eða fyrirmyndar á einhvern hátt,
skal kennurum og öðrum lesendum Menntamála gefin
stutt lýsing á henni.
Marinó L. Stefánsson kennari hefur haft eftirlit og
umsjón á leikvellinum öll þessi ár og á mestan þátt í
mótun starfs- og leikhátta þar. En nokkrir, bæði kennarar
og aðrir, hafa unnið að gæzlunni með honum.
Völlurinn er láréttur, harður, grasflötur rétt norðan við
bæinn. Norðurkantur er girtur hárri skjólgiðingu úr báru-
járni. Á vellinum eru margar rólur, vægiásar (“sölt“),
sandkassar, klifurgrindur, jafnvægisslá, steypt vöðsluþró
(siglingapollur) og útmerkt leiksvæði. Þar er einnig all-
stórt hús. Mestur hluti þess er vinnusalur, en í öðrum
enda er geymslukompa, vatnssalerni og þvottaskál ásamt
drykkjarsprautu.
Leikvöllurinn hefur verið starfræktur um þriggja mán-
aða tima á hverju sumri, júní, júli og ágúst, en stundum
fram í miðjan september. Flest sumurin hefur hinn dag-
legi tími verið frá kl. 9 að morgni tl kl. 7 að kveldi að frá-