Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 17

Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 17
MENNTAMÁL 111 vinnan fjölbreytt, en að sjálfsögðu er ekki allt vel gert. Þau klippa út og mála manna og dýramyndir, hús, rellur og flugvélar, sem síðan er hlaupið með út á völlinn, til þess að reyna þær, skrauthúfur og fána, sem haft er við skrúðgöngu síðar. Svippubönd og mottur gera þau úr alla vega litu snæri, bíla úr trékubbum, sem síðan eru notaðir í sandkössunum, skip til að sigla á pollinum o. m. fl. Mikið er klippt út úr myndablöðum, og á fáum dögum eru allir veggir salsins orðnir þaktir myndum. Ýmislegt. Tafl og spil liggur frammi til notkunar, og stundum nokkuð af barnablöðum eða sögubókum, sem börnin grípa til við og við. Oft segir gæzlumaðurinn sögur. Kallar hann þá börnin saman úti eða inni alltaf á sama tíma dagsins, og eru sögurnar vel þegnar. Ýmsu er fundið upp á til dægradvalar og þroska: Getþrautir, hlutaveltur og jafnvel sjónleikir! Einu sinni á sumrinu er svo stofnað til kappleika eða íþróttamóts. Nokkrum dögum áður en varið til undirbúnings. Mótið hefst með skrúðgöngu og söng. Er þá völlurinn fánum skreyttur. Síðan hefjast kappleikarnir, og eru verðlaun veitt, en það eru litfagrar stjörnur og krossar, allt búið til á leikvellinum. Mót þetta stendur í 2—3 daga. Þótt frelsi megi heita kjörorð leikvallarins, þá er þó lífið að ýmsu leyti reglubundið. Sumir þættir starfs og leikja eiga sinn ákveðna tíma dagsins. Og fáeinar um- gengnisreglur gilda, sem allir verða að hlýða. Fyrir nokkrum árum heimsótti dr. Matthías Jónasson uppeldisfræðingur leikvöllinn, og lét hann svo um mælt, í skýrslu til fræðslumálastjóra, að barnaleikvöllur þessi væri að ýmsu leyti til fyrirmyndar, en sérstaklega myndi þar vera stefnt í rétta átt með því að taka svo mikið tillit til athafnalöngunar barnanna, og sjá þeim fyrir nægum og fjölbreyttum verkefnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.