Menntamál - 01.12.1941, Qupperneq 20
114
MENNTAMÁL
leiðbeinandi aðstoð á að koma til greina, þá verður hún
að koma frá hæfum skólamönnum, sem ferðast milli skól-
anna meðan þeir starfa og sjá, heyra og kynnast af eigin
reynd öllu, bæði smáu og stóru, sem varðar skólalífið og
skólahaldið. Og þess mun ekki að vænta, að með nokkr-
um öðrum hætti takist að láta barnaskólum landsins
heillavænlegt eftirlit í té og æskilegar leiðbeiningar.
í nágrannalöndum okkar duldist mönnum þetta ekki.
Þar hefur slíku skólaeftirliti verið komið á, víðast, fyrir
allmörgum árum. Sumsstaðar var málinu þó ekki hrundið
í framkvæmd andspyrnulaust. En eftir nokkurt þóf voru
þó lög sett um skólaeftirlitsmenn og störf þeirra, og nú
virðist mikilvægi skólaeftirlitsins hvarvetna vitað og við-
urkennt í þessum löndum.
Á Bretlandi og í Svíþjóð er t. d. mjög traust og nákvæmt
eftirlit með allri starfsemi skóla. Eftirlitsmenn eru sí-
fellt á ferðinni milli skólanna, athugandi, áminnandi, leið-
beinandi og glæðandi áhuga og heilbrigt líf. Bretar virö-
ast hafa aukið þetta eftirlit síðustu ár. Eru sérstakir eft-
irlitsmenn með íþrótta- og leikjarstarfi skólanna. Aðrir
hafa eftirlit með kennslu, stjórn og aga o. sv. frv. Svipað
er í Danmörku, og hefur í seinni tíð verið rætt um það
þar, að gera skólaeftirlitsmennina óháðari í störfum, og
auka völd þeirra. Reynzla þessara þjóða hefur sannfært
þær um hið mikla gildi skólaeftirlitsins.
Því miður hefur þessu máli þokað minna áleiðis hjá
okkur íslendingum. Þó eru nú um 20 ár síðan glöggskyggn-
ir skólamenn sáu, að full þörf var á skólaeftirlitsmönn-
um. Kemur þetta skýrt fram í bréfum frá kennurum,
sem prentuð eru í áliti menntamálanefndar þeirrar, er
skipuð var af ríkisstjórninni 1920, til þess að athuga og
gera tillögu um skólamál landsins. í einu þessara bréfa,
sem er frá Þorsteini M. Jónssyni, skólastjóra á Akureyri.
segir svo:
„Ég tel nauðsynlegt, að skipaðir verði skólaumsjónar-