Menntamál - 01.12.1941, Síða 23
MENNTAMÁL
117
Aðalsteinn Eiríksson, skólastjóri við Reykjanesskólann;
Bjarni M. Jónsson, kennari, nú starfsmaður fræðslumála-
skrifstofunnar; ,
Snorri Sigfússon, skólastjóri á Akureyri;
Stefán Jónsson, skólastjóri í Stykkishólmi.
Eftirlitssvæði Stefáns Jónssonar er Austur-Skaftafells-
sýsla og Múlasýslur báðar.
Eftirlitssvæði Snorra Sigfússonar: Eyjafjarðar-, Skaga-
fjarðar- og Suður-Þingeyjarsýsla og Norður-Þingeyjarsýsla
austur að Öxarfjarðarheiði.
Eftirlitssvæði Bjarna Jónssonar: Vestur-Skaftafellssýsla,
Rangárvallasýsla, Árnessýsla, Gullbringu- og Kjósarsýsla
og Mýra- og Borgarfjarðarsýsla.
Eftirlitssvæði Aðalsteins Eiríkssonar: Snæfells- og
Hnappadalssýsla, Dalasýsla, Barðastrandarsýslur báðar,
ísafjarðarsýslur báðar, Strandasýsla og Húnavatnssýslur
báðar.
Þessir menn, er nú voru nefndir, eru allir merkir skóla-
menn, sem menntast hafa utan lands og innan og eiga
langan og lofsamlegan kennsluferil að baki. Er því alls
góðs af starfi þeirra að vænta.
Embættisheiti eftirlitsmanna barnafræðslunnar er sam-
kvæmt gildandi lögum: námstjói’i. Heitið felur þó ekki
í sér starfið, nema að nokkru leyti. En þar sem það er
lögfest og ekki völ á öðru betra, tel ég rétt að halda því.
Sökum þess aö eftirlits/éd er mjög af skornum skammti
getur eftirlitið ekki orðið eins náið og æskilegt væri. Hver
námstjóri hefur allt of stórt svæði yfir að fara. En ákveðið
er að námstjórarnir heimsæki farskólana fyrst og fremst,
en því næst fasta skóla í sveitum og þorpsskóla. En barna-
skólum í kaupstöðum verður alveg sleppt að þessu sinni.
Þeir standa betur að vígi um ýmiskonar aðstoð og hjálp.
Snorri Sigfússon hefur þegar hafið sitt eftirlitsstarf,
Aðalsteinn Eiríksson og Bjarni Jónsson munu fara í eftir-