Menntamál - 01.12.1941, Síða 28

Menntamál - 01.12.1941, Síða 28
122 MENNTAMÁL fræðadeild séu þeir ráðnir til langskólagöngu, að svo miklu leyti sem námsþrek endist og skotsilfur hrekkur til. En á meðan streitast sérsólarnir við að kenna sínum nem- endum undirstöðuatriði reiknings og íslenzkrar stafsetn- ingar, ásamt sömu námsbókunum í almennum fræði- greinum, sem gagnfræðadeildirnar nota. Niðurstaðan verður sú, að gagnfræðingar telja sig jafn víga þeim sér- menntuðu við þeirra störf og jafn réttháa til þeirra, ef þeim þóknast eða þeir neyðast til, að drepa við fótum á langskólabrautinni, og nemendur sérskólanna hafna jöfnum höndum við skriftir og afgreiðslustörf, sem ekki þarf annað til en almenna undirstöðuþekkingu og færleik í skrift og reikningi. Nú liggur það í hlutarins eðli, að nemendur, sem staðist hafa eitthvert próf, telja sér í lengstu lög skylt að hag- nýta sér þau réttindi, sem prófið veitir, sérstaklega ef nemandinn er ungur og réttindin aðeins námsréttindi. Gagnfræðaprófið okkar hefur því haft í för með sér mjög mikið aukna aðsókn að lærdómsdeildum menntaskólanna, ekki sízt eftir að það víxlspor var stigið, að stytta gagn- fræðanámið,. Þessi aukna aðsókn er lærdómsdeildunum vitanlega nokkurt áhyggjuefni, og hefur orðið að grípa til þess óyndisúrræðis, að velja framhaldsnemendurna úr hópi gagnfræðinganna með samkeppnisprófi, en skilja hina eft- ir gersamlega réttindalausa. Engan veginn er það útilokað, að miðskólaprófið og gagnfræðaprófið geti verið eitt og hið sama. En þá verð- ur að tengja við það ákveðin atvinnuréttindi, og mundi til þess þurfa nokkra breytingu á prófinu, a. m. k. frá því, sem gagnfræðaprófið er nú hér í Reykjavík. Hitt tel ég þó tvímælalaust réttari stefnu, að ganga nær skólakerfinu danska og fullkomna það í samræmi við breytta tíma. Við eigum að taka upp miðskólaprófið, eða réttara sagt breyta núverandi gagnfræðaprófum í almennt undirbún- ingspróf undir alla framhaldsskóla, þar með talið mennta-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.