Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
125
innra lífs, sem þjóðin í heild sinni býr yfir, en fáir eru vel
læsir á það letur.
Og enginn getur neitað því, að stundum koma dagar í
Reykjavík, sem ekki bera hversdagssvip. Jafnvel myndu
okkur finnast þeir fleiri hér en annars staðar á þessu landi,
ef við gætum borið saman. Slíka daga birtist bærinn í
nýrri og óvenjulegri mynd, og mennirnir fara ofurlítinn
spöl út frá hinni þekktu slóð annarra daga. Þetta gerist
helzt á tyllidögum, eða þegar óvænt atvik ber að höndum.
Þessa daga gerast oft athyglisverðir og merkilegir hlut-
ir vænlegir til fróðleiks. Mennirnir fá viðfangsefni upp
í hendurnar til að rannsaka og glíma við. Sumir hrista
höfuðin yfir þeim og láta viðfangsefnin sigla sinn sjó, en
aðrir fara að hugsa. Torráðnar gátur knýja á hugina,
ótal spurningar vakna og ótal vafaatriði gera vart við sig.
En það er segin saga um margar gátur af þessu tagi, að ó-
yggjandi vissa um ráðningu þeirra gerir þeim, sem ráðning-
una finna, sízt af öllu hughægara. Ef til vill er grunnurinn
um það ein af ástæðunum fyrir því, að margir sneyða hjá
þeim. Oft þarf hugrekki til að vilja þekkja hin sönnu rök.
1. desember 1939 var dagur óvæntra atburða hér í
Reykjavík og víðar um land, jafn vel út um heim. Þessir
óvæntu atburðir áttu ekki upptök sín hér, en daginn áður
höfðu ógeðfelldar fréttir borizt á öldum ljósvakans utan
ur heimi. Stórt herveldi sótti með miklum þunga að
lítilli þjóð. Rússar höfðu ráðizt á Finna.
Þetta kom að vísu ekki alveg óvænt. Frá því 12. októ-
ber höfðu staðið yfir samningar milli Finna og Rússa.
Blöðin höfðu flutt fregnir frá samningum þessum svo að
segja á hverjum degi, og loks hafði fréttzt, að þeir væru
strandaðir. Tíðindi af þessu tagi voru heldur ekki ný.
Pólland var nýfallið fyrir Þjóðverjum og Rússum. Tæpu
ári áður höfðu Þjóðverjar lagt Tékkóslóvakíu undir sig,
þar áður Austurríki og ítalir Albaníu og Abessiníu. Nú
virtist Finnland eiga að verða næsta fórnin.