Menntamál - 01.12.1941, Qupperneq 32
126
MENNTAMÁL
Þessi dagur átti að verða hátíðisdagur. íslendingar ætl-
uðu að halda hátíðlegan 21. afmælisdag fullveldisins. 20
sinnum hafði verið leitast við að gera daginn hátíðlegan
hér i Reykjavík og allir Reykvíkingar höfðu fyrirfram
nokkra hugmynd um hvernig dagurinn myndi verða, ef
ekkert óvænt kæmi fyrir. Þessi fyrirfram gerða hugmynd
byggðist á reynslu undanfarinna ára. En svo kom þetta,
sem nefnt hefur verið.
Og 30. nóvember seint að kvöldi hélt Stúdentaráð Há-
skólans fund. — En stúdentar höfðu undanfarið séð um
aðalhátíðarhöldin 1. desember. — Þessi fundur samþykkti
svohljóðandi ályktun:
„Með tilliti til atburðanna í Finnlandi síðastliðinn
sólarhring, hefur Stúdentaráðið ákveðið, að hátíða-
höldin 1. desember falli niður. Hinsvegar skorar Stúd-
endaráðið og Stúdentafélag Reykjavíkur á alla stúd-
enta, eldri og yngri, að mæta við Stúdentagarðinn. en
þaðan er ákveðið að fara hópgöngu til finnska ræðis-
mannsins í samúðar- og virðingarskyni við finnsku
þjóðina".
Þessa fundarályktun birtu blöðin 1. desember, og önnur
félög, sem ákveðið höfðu að halda fullveldisfagnað um
kvöldið aflýstu hátíðarhöldunum, nema kommúnistar. Þeir
voru óartarlegir, eins og fyrri daginn, enda áttu vinir
þeirra Rússar hlut að máli. En lögreglustjóri kom í veg
fyrir það alvarlega hneyksli, sem hlotist hefði af þessari
ráðagerð þeirra, og bannaði þeim að halda skemmtisam-
komu á þessum sorgardegi. Blöðin birtu líka ávörp til
finnsku þjóðarinnar, sem mörg fín nöfn voru skráð undir,
og Alþýðublaðið kom með kvæði eftir Hagalín um „Þús-
und vatna landið“, þar sem hann spyr, hvað oröið sé af
guði.
En á tilteknum tíma fóru stúdentar að safnast saman
við Stúdentagarðinn, og nálægt kl. 2 lagði fylking mikil
af stað þaðan í áttina til bústaðar finnska ræðismanns-