Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 50
144
MENNTAMÁL
um áhrifum þetta ár í Sigtúnum, ekki minnstum af skóla-
stjóranum Manfred Björkqvist.
Haustið 1926 sezt Eiríkur svo í skólann í Flensborg í
Hafnarfirði. En þá var líka friðurinn úti. Veikindin, sem
síðan þjáðu hann til hinztu stundar, höfðu lagt hramm sinn
á líf hans. Um veturinn var hann ýmist á Vífilsstöðum eða
í skólanum.
Veturinn 1927-—28 stundar hann farkennslu á Barða-
strönd en les jafnframt undir gagnfræðapróf tilsagnar-
laust. Vorið 1928 fer hann svo norður á Akureyri, tekur
gagnfræðapróf og innritast í menntadeild Akureyi’ar-
skóla. Veturinn næsta er hann í 4. bekk Akureyrarskóla
og sumarið eftir býr hann í heimavist skólans ásamt Matt-
híasi Jónassyni, síðar doktor í uppeldisfræði. Lásu þeir 5.
bekkjar námið um sumarið og settust í 6. bekk haustið
1929.
En þá hafði Eiríkur líka lagt meira á heilsuna en hún
þoldi. Veturinn 1929—30 stundaði hann námið af kappi, en
öðru hverju varð hann að fara á Kristneshæli til hvíldar og
hressingar. Stúdentsprófi lauk hann þó með fyrstu eink-
unn vorið 1930.
Veturinn eftir er Eiríkur kennari á Eiðum hjá séra Jak-
obi Kristinssyni, en haustið 1931 kemur hann til Reykja-
víkur og sezt í guðfræðideild háskólans. Tvo næstu vetur
stundar hann guðfræðinámið af kappi, en síðari hluta
vetrar 1933—34 tekur hann þá ákvörðun að hætta við
guðfræðinámið. Um vorið 1934 tekur hann kennarapróf við
Kennaraskóla íslands og er settur kennari við barnaskóla
Reykjavíkur haustið 1934.
5. júlí 1931 gekk Eiríkur að eiga Sigríði Þorgrímsdóttur
Jónssonar og frú Ingibjargar Kristjánsdóttur að Laugar-
nesi. Þau eignuðust einn son, Þorgrím, sem nú er þriggja
ára.
Eiríkur Magnússon var mjög vel ritfær maður. Hann
þýddi nokkrar bækur og ritaði greinar í blöð og tímarit.