Menntamál - 01.12.1941, Page 58
152
MENNTAMAL
langar nú til að benda á verkefni, sem eru óþrjótandi, en
útheimta vitanlega mikið starf frá hálfu kennaranna.
Ég á hér við skátafélagsskapinn.
Ekki alls fyrir löngu höfðu skátafélögin hér i Reykjavík
sýningu á heimavinnu félaga sinna.. Þessi sýning, sem frá
mínu sjónarmiði var bæði nýstárleg og merkileg, varð til
þess, að ég fór að leita mér upplýsinga um starf þessara
félaga og komst að þeirri niðurstöðu, að uppeldisáhrif
þeirra gætu verið ómetanleg, einmitt vegna hins marg-
þætta starfs, sem þau bjóða unglingum, hverjum eftir
sínu upplagi og hæfileikum. Samstarf þeirra við áhuga-
sama barnakennara ætti því að geta borið hinn bezta
ávöxt.
Núverandi skátahöfðingi íslands er dr. Helgi Tómasson.
Hann er áhugamaður mikill um öll mál skátanna og ötull
með afbrigðum. Hefur hann hafizt handa um ýmsar starfs-
greinar og telur enga fyrirhöfn eftir sér. Dr. Helgi hefur
sagt mér, að ef skátahreyfingin eigi að geta aukið áhrif
sín mjög og borizt víðsvegar um landið, þá sé fyrsta skil-
yrðið að fá marga nýja, áhugasama starfsmenn, sem gætu
tekið að sér að vera deildarstjórar. Engin stétt væri betur
til þess fallin að leggja til þessi foringjaefni, en einmitt
barnakennarastéttin, og engin stofnun eðlilegra heimili
fyrir skátafélögin en barnaskólar landsins. Því er það von
mín, að sem flestir skólastjórar sjái sér fært, að stuðla
að því að koma upp skátadeildum í skólum sínum.
Ég vil nú segja nokkuð frá hinum ýmsu starfsgreinum
skátafélaganna. Sýningin, sem ég gat um áðan, sýndi
mjög margháttaða handavinnu unglinganna, bæði drengja
og stúlkna. Auk þess höfðu þeir, sem þess óskuðu, fengið
tilsögn í teikningu, „módelleringu" o. fl. listgreinum. Alls-
konar íþróttir og leikir höfðu verið kenndir. Á sýning-
unni sá maður börnin sjálf að vinnu og leikjum, og það
var í sjálfu sér fegurra en nokkuö annað, sem hægt var