Menntamál - 01.12.1941, Side 63
MENNTAMÁL
157
Samvinna við flesta aðila tókst giftusamlega t. d. um
skiptingu skólahúsnæðis milli bæjanna.
í Reykjavík var samstarf milli þessara félaga: Oddfell-
owreglunnar, Sumargjafar og Vorboðans, en auk þess rak
nefndin nokkur heimili, svo sem frá var skýrt í síðasta
hefti Menntamála. Auk þess var komið á fót á nokkrum
stöðum mötuneyti fyrir mæður með börn.
Áður en starfið hófst þótti rétt að láta fara fram rann-
sókn og athuga um óskir fólksins. Voru kennarar látnir
fara um bæinn og athuga hversu margir aðstandendur
vildu koma börnum i sveit í samvinnu við sumardvalar-
nefnd, og hverja fyrirgreiðslu hver þyrfti.
Þessi rannsókn var framkvæmd rétt eftir að þýzkar hern-
aðarflugvélar höfðu tvisvar, með skömmu millibili, sézt
sveima yfir Reykjavík. Mörgum þótti ástandið ískyggilegt
og skráðu sig margir, sem ekki gáfu sig fram, þegar til átti
að taka. Óskað var dvalar fyrir nál. 1200 börn á aldrinum
5—8 ára og 600—700 á 7—9 ára aldri. Vegna þessa mikla
fjölda var nefndin á tímabili í vandræðum með húsnæði,
ekki síst af þvi, að nauðsynlegt þótti að tryggja varahús-
næði, ef til alvarlegra atburða drægi. Töluvert fé og mik-
ill tími eyddist í lagfæringar á húsum og skólum, sem ekki
voru heimavistarskólar með rúmstæðum, eldavél o. fl. Má
þar til nefna bæði Stykkishólm og Sandgerði. Nú komu
engir alvarlegir atburðir fyrir, svo að ótti fólks við loftá-
rás rénaði, og nefndin þurfti ekki að ráðstafa eins mörg-
um börnum, eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Rekstur
sumra heimilanna varð af þessum orsökum allt of dýr,
þar sem hvergi nærri var fullskipað.
Stjórn Rauða krossins og læknar höfðu allt heilbrigðis-
eftirlit með allri starfseminni. Börnin voru vegin er þau
fóru í sveitina og svo er þau komu aftur heim, hafði þroski
flestra þeirra orðið verulega góður. Læknar voru Krist-
björn Tryggvason, Gunnlaugur Einarsson og Bjarni Jóns-
son.