Menntamál - 01.12.1941, Page 66
160
MENNTAMÁL
skólanefndina. En þeir kennararnir Steinþór Jóhannsson
og Tryggvi Þorsteinsson höföu umsjón með börnunum.
Þar er heit sundlaug og fór börnunum mjög mikið fram að
synda. Tvö þeirra luku fullnaðarprófi í þeirri grein.
Þau hjón Þórey Jónsdóttir og Árni Jóhannsson að
Meiðavöllum í Kelduhverfi tóku 9 börn til sumardvalar
á heimili sitt. Húsakynni eru þar góð og umhverfi ánægju-
legt, enda leið börnunum þar vel.
Þá skal lauslega drepið á kostnaðarhliðina. Frjáls fjár-
söfnun var þessi:
Fjársöfnun nefndarinnar (merkjasala, blaðið
„Sumardvcl“, samkomur, gjafir o. fl.) .... kr. 6655.73
Frá kvenfélaginu „Hlíf“ .................. — 1394.11
— verkakvennafélaginu „Eining“ .......... — 800.00
— Oddfellowstúkunni „Sjöfn“ ............. — 700.00
Samtals kr. 9549.84
Framlög frá foreldrum námu kr. 4519.30. Sumardvalar-
nefndin og foreldrar barnanna hafa því lagt fram sam-
eiginlega til þessarar starfsemi kr. 14.069,14. Allur kostn-
aður varð kr. 25.230,70. Hafa Akureyrarbær og rikissjóður
greitt mismuninn eða kr. 11,161.56, sinn helminginn hvor
aðili.
Það ég til veit, er almenn ánægja yfir sumardvöl barn-
anna, bæði þeirra, er voru á barnaheimilunum og ekki
síður þeirra, sem voru á sveitaheimilunum. Heilsufar var
ágætt og framfarir barnanna góðar. Þyngdust börnin á
barnaheimilunum að jafnaði 1,5—2 kg. yfir dvalartímann.
Að lokum vil ég, fyrir hönd nefndarinnar, þakka öllum
þeim, sem studdu að sumardvöl barnanna með fjárfram-
lögum eða á annan hátt, og ekki síður hinum, er Önnuðust
þau og báru umhyggju fyrir þeim,
F. h. Sumardvalarnefndar Akureyrar,
Eiríkur Sigurð'sson.