Menntamál - 01.12.1941, Síða 75
MENNTAMÁL
169
Yíirlit
um Lífeyrissjóð barnakennara frá stofnun hans og til ársloka 1938.
Ár Innborguö lífeyrisgjöld Greiddur lífeyrir og endurgreitt l'ekju- afgangnr Eignir i árslok Þar af i Idn- um tii kenn- arabústaða
Styrktarsjóður kennara 3.1.1922: 53.080,76
3.1.’22 —23.4.1923 34.258,72 53,12 37.250,87 90.331,63
23. 4.’23 —6.5.1924 27.098,39 3.029,94 32.883,64 123.341,47
6.5.’24—31.12.1924 10.000,00 5.079,45 6.737,44 130.078,91
1925 20.778,46 3.454,73 30.254,16 160.333,07
1926 25.360,41 4.314.41 32.745,17 193.078,24
1927 24.090,04 4.508,24 30.073,33 223.151,57
1928 24.890,18 6.196,17 35.087,82 258.239,39
1929 25.728,32 6.401,56 32.705,60 290.944,99
1930 29.119,08 8.746,49 26.746,02 317.691,01
1931 32.705,24 7.522,08 67,749,16 385.440,17
1932 35.063,98 8.500,87 52.515,19 437.955,36
1933 37.527,05 13.384,65 46.052,38 484.007,74 25.000,00
1934 42.871,88 11.131,64 37.055,23 521.062,97 264.623,00
1935 47.766,95 18.699,73 53.843,79 574.906,76 333.235,61
1936 52.976,27 19.055.41 64.298,09 639.204,85 369.380,98
1937 63.265,62 15.951,04 72.646,16 711.751,01 470.100,11
1938 62.561,77 25.569,65 67.779,25 779.630,26 560.947.80
Reikningar Lífeyrissjóðs barnakennara hafa ekki verið birtir í
Stjórnartíðindunum undanfarin ár, og enda þótt svo hefði verið, þá
munu kennarar almennt ekki hafa Stjórnartíðindin við hendina til
þess að geta séð vöxt sjóðsins og gengi um nokkurt árabil. En þar
sem ég hef alloft orðið þess var, að kennara fýsti að fá nokkra
vitneskju um þann sjóð, sem hefur orðið til fyrir atbeina þeirra og
árleg gjöld af kennaralaununum, þá hef ég gert þetta yfirlit um þau
atriði 1 reikningum sjóðsins, sem mestu máli skipta.
Fyrstu ár sjóðsins voru reikningarnir miðaðir við skólaárið, en því
var breytt í árslok 1924, og síðan hafa reikningamir miðast við al-
manaksárið.
Sjóðurinn hefur verið undir umsjón fræðslumálastjóra, þar til í
janúar 1939, að Tyggingarstofnun ríkisins tók við vörzlu hahs.
H. El.