Menntamál - 01.03.1951, Blaðsíða 19
MENNTAMÁL
11
Klukkan 9,00—11,35: Kennslustundir.
Klukkan 11,40—12,40: Hádegisverður.
Allur matur er að sænskum sið borinn fram á eitt stórt
borð, sem auðvelt er að komast að frá öllum hliðum. Nem-
endum er síðan skipt í 4 flokka, sem sækja sér mat og ganga
þannig sjálfir um beina, hver fyrir sig. Allar máltíðir eru
með þessu sniði. Þetta fyrirkomulag gefst mjög vel. Borð-
haldinu stýra kennarar til skiptis.
Klukkan 12,40—15,15: Kennslustundir og annað náms-
starf eftir þörfum.
Klukkan 15,15—16,30: Miðaftansdrykkja og útivera. Ef
mögulegt er veðurs vegna, fara nemendur út í leik eða
göngu. Umsjónamenn á vistum sjá um útitímann.
Klukkan 16,30—19,00: Lestur og undirbúningsstarf. —
Algert hljóð í skólanum. Þeir nemendur, sem hafa sýnt, að
þeim hættir til að slá slöku við námið eða koma af stað
ókyrrð eru skikkaðir til að halda kyrru fyrir og lesa í einni
kennslustofunni. Þar sitja kennarar til skiptis, þeir sem
hafa umsjónarstarf þá vikuna, og nemendur geta þá leitað
aðstoðar þeirra, ef þörf krefur. Tveir og tveir kennarar
hafa auga með því, sem fram fer í skólanum eina viku í
senn. Svo þriðju hverja viku er hver kennari að nokkru
bundinn við eftirlitsstarf.
Klukkan 19,00—19,30: Kvöldverður.
Klukkan 19,30—21,30: Lestur og tómstundavinna. •—
Ýmsir þurfa að lesa meira en lesið var í lesstofutíma eða
vinna að úrlausnum heimaverkefna. Sumir hlusta á útvarp,
aðrir æfa blak eða annan knattleik í leikfimissal. Töfl eru
tekin fram. Æfður er orgelleikur eða píanóleikur, æfður
söngur eða eitthvað ennþá annað tekið fyrir. En nemend-
um er bannað að fara í gönguferðir út í myrkrið.
Klukkan 21,30—22,00: Kvöldvaka og kvöldhressing. —
Á hverju kvöldi — nema á laugardagskvöldum, þá gerist
eitthvað annað og meira — koma nemendur og að jafnaði
kennarar saman í borðsal til 15—20 mín. kvöldvöku. Oft