Menntamál - 01.03.1951, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL
13
skemmtiferð að afloknu vorprófi. Sunnudagskvöldin eru
sjaldan frábrugðin kvöldum virkra daga. En flest laugar-
dagskvöld er eitthvað gert sér til gamans. Annað hvert laug-
ardagskvöld eru þá einhver létt skemmtiatriðiogdansæfing.
Hljómsveit nemenda leikur fyrir dansinum. En um aðra
hverja helgi er meiri alvörublær á skemmtiskránni: Fræð-
andi erindi, kvikmyndasýning, söngur o. fl. Að lokum er
þá oft farið í söngleiki eða norrænir þjóðdansar stignir í
leikfimissal. Mest eru þetta sænskir dansar. Ljóð og lög
dansanna og leikjanna eru sungin, og oftast eru allir með,
nemendur, starfsfólk og kennarar.
Starfsemi heimavistarskóla er tvíþætt. Annars vegar
verður hann að gegna því fræðslustafi, sem lög gera ráð
fyrir, og hins vegar uppeldisstarfi samkvæmt þeim regl-
um, er hann setur sér. Auðvitað verður þetta tvennt að
haldast í hendur, ef vel á að fara. Unglingarnir, sem skól-
ann sækja, eru mjög misjafnir í háttum og að upplagi, eins
frábrugðnir hver öðrum eins og þeir eru margir, svo að oft
getur verið erfitt að fella flokkinn saman í eina heild. En
skólinn þarf fyrst og fremst að vera eins og gott heimili,
þar sem stjórnsemi og umhyggja ræður ríkjum. Uppeldis-
starfið er vissulega ekki þýðingarminna en fræðslustarfið.
Marlc og mið.
Seinnipart vetrar skólaárið 1949—1950 eyddi ég nokkr-
um morgunstundum til þess að lesa fyrir nemendur og hug-
leiða nokkra kafla úr því nær 60 ára gömlum leiðarvísi um
uppeldi, sömdum og endursögðum af séra Ólafi Ólafssyni
frá Arnarbæli. Þar er víða komið við og þar finnast mörg
holl og sígild ráð fyrir þá, sem fást við uppeldi ungs fólks,
eða fyrir unga fólkið, sem sjálft vill leita ráða um ýmis
vandamál þess efnis.
Á einum stað í þessum sextuga bæklingi er komizt svo