Menntamál - 01.03.1951, Page 35

Menntamál - 01.03.1951, Page 35
MENNTAMÁL 27 stöður kenna nemendum það, að mistök geta átt sér stað í tilraunum. Varla getur vafi á því leikið, að með nemendaæfingu fæst að mörgu leyti betri kennsla en með útskýringar- tilraun. Það tíðkast líka meir og meir í skólum, að húsa- kynnum þeim, sem ætluð eru til kennslu í eðlisfræði, sé svo fyrir komið, að þar sé bæði tilraunastofa og kennslusalur eða báðar deildir sameinaðar, ef um litla skóla er að ræða. Tilraunastofu á að vera haganlega fyrir komið að innan, og ættu skólarnir að leita aðstoðar sérfróðra manna áður en gengið er frá þeim útbúningi. Kaupum á gögnum til nemendaæfinga á einnig að haga eftir vendilega hugsaðri áætlun. Þó að nemendaæfing hafi ótvíræða kosti fram yfir út- skýringartilraun, er hvorki fært né heldur ber að stefna að því að gera allar tilraunir með þeim hætti, að þær séu nemendaæfingar. Tími og dýrleiki áhalda setja takmörk að þessu leyti. Ekki eru allar tilraunir fallnar til nemenda- æfinga, og margar tilraunir bera góðan árangur með þeirri tilhögun, að þær séu útskýringartilraunir. Flestar mæli- æfingar svo sem t. d. það að ákveða eðlisþyngd og bræðslu- mark og margar rannsóknir á eiginleikum hluta svo sem t. d. hárpípukrafti og segulmagni veita nemendum betri færi til athugana með þeim hætti, að nemendaæfingar séu. Úr þeim tilraunum, sem fallnar eru til nemendaæfinga, verður kennarinn að velja með tilliti til tíma og muna um leið, að meiri áherzlu verður að leggja á það, að nemenda- æfingum sé vel fyrir komið og þær séu vel gerðar en hitt, að þær séu margar. Kennari, sem enga reynslu hefur um nemendaæfingar, verður í byrjun að haga vali sínu mjög gætilega, og honum skal til þess ráðið að láta sér nægja fáar og heldur umfangslitlar æfingar, þangað til hann fær nægilega reynslu.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.