Menntamál - 01.03.1951, Side 43
MENNTAMÁL
35
SEXTUGUR:
Séra Ingimar Jónsson
Séra Ingimar er fæddur
í Hörgsholti í Hruna-
mannahreppi 15. febr.
1891. Af eigin rammleik
brauzt hann til mennta,
stundaði fyrst nám í Flens-
borgarskóla, síðan í Kenn-
araskólanum, lauk þar
prófi 1913. Stúdentprófi
lauk hann 1916 og guð-
fræðiprófi 1920, vann í
skrifstofu í Reykjavík til
ársins 1922, vígðist þá
prestur að Mosfelli í
Grímsnesi og þjónaði því
kalli fram til ársins 1928,
er hann gerðist skólastjóri
Gagnfræðaskólans í Rvík.
(nú Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar), eða Ingimarsskólans eins og skólinn er nefndur
manna á meðal, því að svo mikill hefur verið hlutur skóla-
stjórans að ryðja stofnunni braut; að almenningi hefur
þótt hún rétt kennd við nafn hans. Það væri vafalaust
merkileg saga að segja frá því, hvernig sú stofnun hefur
orðið til, og hverjar þrengingar hún hefur orðið að þola í
uppvextinum, en því miður er þess ekki kostur hér.