Menntamál - 01.08.1968, Page 28
136
MENNTAMÁL
2. að ákveðin upphæð af byggingarkostnaði hvers nýs skóla
renni til stofnunar skólabókasafns.
3. sérstök ákvæði um tekjustofna, sem tryggi viðhald, end-
urnýjun og eðlilegan vöxt skólabókasafna, t. d. með
árlegu framlagi úr ríkissjóði á hvern nemanda.
4. reglur um ákveðinn starfsmann, sem sjái um rekstur
safnsins, leiðbeini um notkun þess og hafi eftirlit með
því.
Þingið felur væntanlegri sambandsstjórn að vinna af al-
efli að framgangi þessa máls og gera grein fyrir því á næsta
fulltrúaþingi.
Byggingarsamvinnufélagið
20. fulltrúaþing S.Í.B. felur sambandsstjórn að vinna að
því, að S.Í.B. taki að sér rekstur Byggingarsamvinnufélags
barnakennara í áföngum, eins og óskað hefur verið eftir af
hálfu byggingarsamvinnufélagsins.
Þingið heimilar sambandsstjórn að ráða nauðsynlegt
starfsfólk svo að unnt verði að sinna þessum auknu störfum
skrifstofunnar.
Meðan ekki hefur verið gerður samningur milli aðila
um reksturinn, telur þingið eðlilegt, að byggingarsam-
vinnufélagið greiði gegn reikningi þau störf, sem unnin
eru af hálfu S.Í.B. í þágu J:>ess, og þá aðstöðu, sem veilt er.
kr. 451.000,00
Fjárhagsáætlun fyrir árið 1968
Tekjur:
Árgjald 820 fél. kr. 550/ ...
Alls kr. 451.000,00