Menntamál - 01.08.1968, Síða 85
MENNTAMÁL
193
19. fulltrúaþing S.I.B. felur sambandsstjórn að hlutast til
um, að hjón, sem bæði greiða í lífeyrissjóð barnakennara,
njóti sömu réttinda.
Sambandsstjórn hefur á liðnum 2 árum leitazt við að fylgja
eftir þessum samþykktum jringsins. Hins vegar fór því mið-
ur svo, að fáir liðir þessara tillagna hafa fengizt frarn.
Kjarasamningi opinberra starfsmanna var sagt upp í árs-
byrjun 1967, og hófu Jrá félög opinberra starfsmanna undir-
búning að nýrri kröfugerð.
Stjórn S.I.B. vann að Jjessu sinni mest sjálf að undirbún-
ingi að kröfum barnakennara, þó var höfð samvinna við
stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík. Kröfugerðin
var að Jressu sinni frábrugðin Jreim kröfum, er áður hafa
verið fram settar við fyrri samninga, þar sem nú átti ekki
að semja um röðun starfsheita í launaflokka. Verður vikið
að því síðar.
Stjórn S.Í.B. samjrykkti í apríl 1967 eftirfarandi tillögur,
sem sendar voru Kjararáði. Tillögunum fylgdu athuga-
semdir um einstaka 1 iði, sem hér er sleppt:
Tillögur S.Í.B. til Kjararáðs.
I.
a) Vegna þeirrar heildarathugunar á skipan ríkisstarfs-
manna í launaflokka, sem nri stendur yfir, gerir stjórn
S.Í.B. ekki að svo stöddu tillögur um röðun barnakenn-
ara í launaflokka.
b) Aldurshækkanir verði örari en verið hefir, svo að full
laun náist á 10 árum.
c) Tillögur um nýjan launastiga eða breytingar á núgild-
andi stiga verða ekki gerðar á Jressu stigi málsins. Hins
vegar leggur stjórn S.I.B. áherzlu á það, að laun barna-
kennara verða að hækka, frá Jrví sem nú er. Skal þessi
krafa studd nokkrum rökum: