Vorið - 01.12.1969, Qupperneq 3
VORIÐ
TÍMARIT FYRIR
BÖRN OG UNGLINGA
Kemur út í 4 heftum ó óri, minnst 48 blaðsíður hvert hefti. — Argangurinn
kostar kr. 125.00 og greiðist fyrir 1. maí. — Utsölumenn fó 20% inn-
heimtulaun. —- Utgefendur og ritstjórar: Hannes J. Magnússon, rithöf-
undur, Hóaleitisbraut 1 17, Reykjavlk, og Eirikur Sigurðsson, fyrrv. skólastj.,
Hvannavöllum 8, Akureyri. — Prentað ! Prentsmiðju Björns Jónssonar.
35. ÁRGANGUR
OKT.—DESEMBER
4. HEFTI 1969
Gréta Berg Bergsveinsdóttir, listmólari
í septembermánuði síðastliðnum hafði tví-
tug stúlka, Gréta Berg úr Hafnarfirði mál-
verkasýningu í húsgagnaverzlun Yalbjarkar
á Akureyri. A sýningunni voru 39 myndir,
17 olíumálverk, 12 vatnslitamyndir og þar að
auki nokkrar teikningar. Aðsókn að sýning-
unni var góð og seldust 15 myndir.
Vorið átti tal við þessa ungu listakonu um
niyndirnar og spurðist fyrir um nám hennar.
— Eg er fædd á Akureyri og ólst hér upp
til 8 ára aldurs. Forldrar mínir eru Berg-
sveinn Guðmundsson, húsameistari, og Mar-
grét J. Thorlacius frá Oxnafelli.
— Hvaða nám hefur þú stundað?
— Ég varð gagnfræðingur frá Flensborg
Vorið 1965 Og hafði alltaf mest gaman af að Gréfa Berg Bergsveinsdóttir.
teikna í skólanum. Svo var ég í Englandi
1965—1966 og var þar í 6 mánuði við nám í teikniskóla og lærði að fara
með olíuliti.
Veturinn 1967—1968 var ég svo í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Þar
Bkaði mér ekki vel. Enda dæmdu þeir mig óhæfa til að mála. Mér fannst þeir
llestir dýrka ljótleikann. Ég geymi prófvottorðið til að minnast þeirra seinna.
VORIÐ 145