Vorið - 01.12.1969, Page 15

Vorið - 01.12.1969, Page 15
— ÞacJ hefur verií banki. '— Já, og þangað fara aurarnir úr sparibauknum mínum. Eg hef aldrei vit- að, að þeir væru í svona stóru húsi. — Heldurðu, að það þurfi svona stórt hús utan um þá? — Já, það segir pabbi. Þar býr ekk- ert fólk. — Mér þykir sonur þinn athugull, vinur sæll. — Já, hann er eftirtektarsamur, drengurinn. Hvað segir þú í fréttum? — Eg gæti nú sagt ýmislegt. Ég brá mér um daginn til Spánar með einu ferðafélaginu okkar. Þetta var ekki tttjög dýrt, en ákaflega skemmtilegt. En bezt voru hlýindin. En mér leiddist allt þetta mistur í loftinu. Það var ekki eins hreint og hér. — En gróðurinn fj ölbreyttari vænti ég? — Já, ekki er hægt að neita því. Fagurt var blessað blómskrúðið. En hvergi hef ég séð aðra eins fátækt. Osköp var að sjá sumt fólkið. Nei, þá líður okkur betur hérna. Þetta er bless- að land. I dag ætla ég í sumarbústaðinn að hressa upp á hann. Sælir og blessaðir. Og svo var bann horfinn. — Vertu blessaður. Sólin skein með geislum sínum á sundin og varpaði á fjöllin fögrum dýrðarljóma. Faðirinn gat ekki orða bundizt yfir fegurðinni í kringum þá. — Sjáðu fegurðina í fjöllunum og á sundunum, Atli minn. Heyrðurðu hvað hann sagði áðan um landið okkar? Og hafðu ávallt í huga að „þetta er landið þitt“. E. Sig. I-***., *• * * * * * * * * * ★ * * * * * * * * * * * * ★ * * * * * * * * * * * * ■L *-******************************** ^****************^ 4 Barnablaðið Æskan 70 ára Á þessu hausti á barnablaðið Æskan 70 ára afmeeli. Stórstúka íslands gefur blaðið út. Fyrsti ritstjóri þess var Sigurður Júl. Jóhannesson, en núverandi ritstjóri er Grímur Engilberts. Æskan hefur náð mikilli útbreiðslu og er myndskreytt og mjög fjölbreytt að efni. Vorið — yngra systkini Æskunnar — óskar henni til hamingju með þetta merkisafmæli. Eiríkur Sigurðsson. +**-++++++*+++*+**++*+*++****++++++**+******+******+*+******+ ♦ * * * * * ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ VORIÐ 157

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.