Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 17

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 17
Og labbaði sneyptur heim. Ég sá, að ég hafði siglt á skökk mið. Ég hafði nokkrum sinnum séð silunga í læk niðri í flóanum, en hafði ætlað að sækja fengsælli mið í þetta sinn, þótt Það brygðist illa. En nú var kominn i niig sannarlegur veiðihugur, og þegar eins var ástatt með mig daginn eftir, að engin stórverkefni biðu úrlausnar. ... þetta var nefnilega á milli fráfærna og sláttar. En þá er oft yndislegt í sveitinni. Veiðihugurinn frá deginum áður hlossaði upp að nýju. Ég tók veiðistöng- lna mína — eða gogginn — og gekk niður í flóa. Þar er lítil, lygn tjörn. Við einn bakka hennar bullar upp ískalt og tært vatn. Þarna var fullt af vatnskött- nm og hornsílum. En ég fyrirleit nú svo- leiðis kvikindi. Ég leit því ekki við slíku íiskiríi. Auk þessa sá ég þarna margar innnnklukkur, en þær vildi ég helzt hafa ’ ^æfilegri fjarlægð, því að mér var sagt ef maður íoorl að rrapa yfir: slíkum_ Pollum gætu þær stokkið upp í mann og síðan ofan í mann, en þá gæti maður ^lotið bráðan bana. Ur tjörn þessari rann blátær lækur milli fagurgrænna bakka. Þar hafði ég séð silunga skjótast á milli hyljanna. Eg fór nú að stappa fótunum í jörð- lr>a á lækjarbakkanum, komu þá silung- arnir oft fram, en hurfu jafnharðan aft- ar og földu sig undir bökkunum. Ég ætl- aði alltaf að reyna að krækja goggnum 1 pá þegar þeir komu í ljós, en það mis- tókst auðvitað alltaf. Þeir sáu alltaf þetta morðvopn og kunnu að forðast það. Ég held, að þ eir hafi verið vitrari en kýrn- ar- Þegar svo hafði gengið lengi lengi, Heygði ég goggnum á lækjarbakkann og hugðist taka upp aðra veiðiaðferð og miklu frumstæðari. Ég fletti upp hægri jakkaerminni minni, seildist niður í vatnið og þreifaði undir bakkann. Oft fann ég til silungsins, en missti jafnan af honum. Eftir margar misheppnaðar tilraunir náði ég loks taki á einum rétt framan við sporðinn og ríghélt því taki. Ég var nú ekki seinn á mér að koma honum upp á yfirborðið. Þetta var talsvert stór branda, líklega um 30 sentimetra löng. Mikið var stolt mitt, þegar ég sá hann liggja í grasinu á lækjarbakkanum og taka andköf. Sagan er nú ekki sögð öll enn. Eftir þessa veiðilukku hélt ég áfram með frarn læknum og sá fleiri silunga skjótast þar. Auðvitað gerði ég óteljandi tilraunir til að handsama þá, en flestar mistókust. Ég hugsaði sem svo. Ef ég gat náð einum get ég alveg eins náð tveimur eða þrem- ur, því að1 allt voru þetta svipaðir fisk- ar og líklega svipuðum gáfum gæddir, svo að ég hélt áfram að skríða eftir lækj - arbakkannum. Ég hirti ekki um það, þótt ég væri orðinn rennblautur á hnjánum og búinn að fá bakverk, eins og oft þeg- ar ég var að bera af túninu. Fólkið á bæjunum í kring hefur sjálf- sagt horft hissa og brosandi á þessar nýtízku tilraunir til veiðimennsku, ná- lega á þurru landi. Ég kærði mig kollóttan um það, og nú kom ég að tærurn hyli. Þar sá ég silung á botninum, allvænan, en hylurinn var svo djúpur að ég náði ekki með hend- inni til hans. Ég reyndi því með fóta- stappi og öðrum tilburðum, að fæla VORIÐ 159

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.