Vorið - 01.03.1970, Side 48
Við austanverðan SJcjálfanda er kaup-
staðurinn Húsavík. íbúar eru um 1900,
mikið athafnalíf og bærinn í örum
vexti.
Samkvæmt norrænum heimildum var
það sænskur maður, Garðar Svavars-
son að nafni, sem fyrstur steig á land í
Húsavík. Hann bafði siglt kringum
landið, gengið úr skugga um, að það
væri eyland og hafði vetrarsetu á Húsa-
vík. Gerði hann þar hús og af því fékk
staðurinn nafn sitt.
A Húsavík er aðalatvinnuvegurinn
útgerð, en einnig talsverð verzlun og at-
vinna af landbúnaði. Á Húsavík er bæj-
arfógeti, sjúkrahús, kirkja, gagnfræða-
skóli, sundhöll, félagsheimili, gistihús
og veitingastaðir. Hafnarmannvirki eru
mikil og flugvöllur í Aðaldalshrauni.
Jarðhiti er í nánd við Húsavík og er
þar nú hitaveita. Stærsta verzlun á
Húsavík er Kaupfélag Þingeyinga, elzta
kaupfélag landsins.
Kóri Arnórsson, skólastjóri.
Útsölumaður Vorsins á Húsavík ®
Kári Arnórsson, skólastjóri, en á ui*
an honumhafði Jóhannes Guðmundsso11’
kennari, haft útsölu þess á hendi í
ár. Vorið hefur alltaf notið vinsæW3
Húsavík og hefur þar nú 85 kaupend11*
E. Sig-
44 VORIÐ