Vorið - 01.10.1974, Blaðsíða 6
Anna Ölander:
Uólagjöf Jóns litla
Hann afi var kominn til þess að vera á
prestssetrinu um jólahátíðina. það var
langt síðan hann hafði verið þar, því að
amma, konan hans, var búin að vera veik
langa lengi, svo að hann gat aldrei farið
frá henni. En nú var hún horfin til Guðs
í himininn, og nú var afi kominn til þess
að vera hjá dóttur sinni og tengdasyni um
jólin.
Steini, elsti sonur prestsins, mundi samt
vel eftir afa og hversu ráðsnjall og góður
hann var. Enginn var honum jafnsnjall,
nema pabbi og mamma auðvitað! Steini
minntist þess sérstaklega, þegar tromman
hans datt í sundur og hann var ekki mönn-
um sinnandi vegna þess óhapps, en
mamma hans varð samt sárfegin, vegna
þess að henni varð æfinlega illt í höfðinu
af öllum hávaðanum í trommunni. Steina
þótti að vísu illt að mamma skyldi fá höf-
uðverk af þessu, því að hún var alltaf góð
og ástúðleg, en hvað sem því leið, var það
sára sorglegt að tromman skyldi fara
svona. Hún var svo ljómandi falleg og
litskrúðug, og það heyrðist í henni lang-
ar leiðir, jafnvel alla leið til húss hringj-
arans.
Pegar þetta bar við, hittist svo á að afi
var þar staddur. Hann hafði þá tekið
Steina litla á hné sér og rætt við hann all-
6
lengi og sagt honum meðal annars að
hann skyldi fá annað leikfang í staðinn,
sem mömmu yrði ekki til óþæginda. Aulc
þess sagði afi honum, að litlir drengif
ættu að venja sig á að hugsa um aðra og
taka tillit til þeirra en hugsa ekki ein-
göngu um sjálfa sig og sína eigin ánægju.
Frá þeirri stundu þótti Steina enn vænna
um afa og ömmu en áður.
Þegar svo afi gaf honum bát með rá og
reiða, sem hann gat látið sigla á bæjar-
iæknum úti og í þvottabalanum inni, var
hann reglulega ánægður yfir því, að
mamma þyrfti ekki að fá höfuðverk leng-
ur hans vegna.
En nú var Steini ekkert barn lengur,
fullra þrettán ára! Næst honum komu þau
Gunnhildur, Svenni og Eiríkur, og yngst-
ur var Jón litli aðeins sex ára, enda ekki
byrjaður á að læra að lesa. Hann var lít-
ill og fremur veikbyggður líkamlega. Syst-
kinin stóðu öll úti á dyraþrepunum, þegar
afi kom og Jón litli að baki hinna. Hann
var hálffeiminn við afa ,en það leið samt
ekki á löngu þar til þeir urðu mestu mátar.
Þegar setið var að morgunverði daginn
eftir, sagði afi við systkinin, að þau skyldu
öll koma inn til hans um hádegið og ræða
við hann um það, hvað þau langaði mest
til að fá í jólagjöf frá honum. En það yrðu
VORIÐ