Vorið - 01.10.1974, Blaðsíða 10
að það var prestskonan, sem komin var.
Það var auðséð, að Jón litli og mamma
hans voru þar kærir gestir og velkomn-
it.
— Góðan dag, Andrés minn, sagði
frúin, við erum komin hingað, hann
Jón litli og hann fáðir minn elskulegur,
til þess að óska ykkur öllum gleðilegra
jóla og friðar frá Jesú Kristi á heilagri
jólahátíð. Og svo er drengurinn litli með
dálitla jólagjöf handa þér.
— Jólagjöf handa mér! ansaði Andr-
és undrandi.
Jón litli beið í mikilli eftirvæntingu
á meðan gamli maðurinn leysti utan af
bögglinum með stirðum fingrum. Loks
var því lokið.
— Biblía! — Guðs eigið blessað orð!
— Jafn stór og gamla Biblían mín var!
Varð Andrési gamla að orði.
— Hérna er ég með gleraugu handa
þér líka, svo að þú getir séð til að lesa,
sagði Jón litli.
Gamli maðurinn lét á sig gleraugun
með skjálfandi höndum, lauk svo upp
bókinni og las: „Drottinn er minn hirð-
ir, mig mun ekkert bresta.“
Alger þögn ríkti í stofunni andartak
en svo tók Andrés af sér gleraugun og
féllu þá stór tár niður vanga hans.
— Nú get ég þá aftur lesið blessað
orð, Drottins sjálfs, sagði hann titrandi
klökkum rómi. Ég hefi þráð það, en
Biblían hans sonar míns er með svo smáu
letri, að ógerlegt hefir verið fyrir mig
að lesa það, og sjaldan hefir nokkur haft
tóm til að lesa fyrir mig. Ég þakka þér,
Jón litli. Guð blessi þig um tíma og ei-
lífð.
— Hann afi minn gaf mér það, sagði
Jón litli og ljómaði af gleði.
—■ Já, það er rétt, sagði þá afi hans,
en hann vildi heldur fá Biblíuna og gler-
augun handa Andrési ,en jólagjöf handa
sér sjálfum.
— Guð blessi hann! endurtók Andrés
gamli og fleiri orðum gat hann ekki
upp komið.
Þá var tekið upp það, sem í körfunni
var, og gladdi það fátæka fjölskylduna,
eins og nærri má geta.
Að svo búnu héldu þau afi og mamma
og Jón litli heimleiðis. Fögnuður fyllti
hjörtu þeirra yfir morgunverkinu, en
ekki veit ég hvert þeirra var glaðast.
Um kvöldið fékk Steini bókina sína,
Gunnhildur töskuna, Svenni litakassann
og Eiríkur garðyrkjuáhöldin, ásamt jóla-
gjöf frá pabba og mömmu, sem þau öll
fengu. En Jón litli varð að sætta sig
við faðmlag og blessunaróskir afa og
jólagjöf foreldranna, og virtist honum
það auðvelt, því að hann var jafnglaður
og kátur og hin börnin þessi jól.
W
VORIÐ