Vorið - 01.10.1974, Síða 10

Vorið - 01.10.1974, Síða 10
að það var prestskonan, sem komin var. Það var auðséð, að Jón litli og mamma hans voru þar kærir gestir og velkomn- it. — Góðan dag, Andrés minn, sagði frúin, við erum komin hingað, hann Jón litli og hann fáðir minn elskulegur, til þess að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og friðar frá Jesú Kristi á heilagri jólahátíð. Og svo er drengurinn litli með dálitla jólagjöf handa þér. — Jólagjöf handa mér! ansaði Andr- és undrandi. Jón litli beið í mikilli eftirvæntingu á meðan gamli maðurinn leysti utan af bögglinum með stirðum fingrum. Loks var því lokið. — Biblía! — Guðs eigið blessað orð! — Jafn stór og gamla Biblían mín var! Varð Andrési gamla að orði. — Hérna er ég með gleraugu handa þér líka, svo að þú getir séð til að lesa, sagði Jón litli. Gamli maðurinn lét á sig gleraugun með skjálfandi höndum, lauk svo upp bókinni og las: „Drottinn er minn hirð- ir, mig mun ekkert bresta.“ Alger þögn ríkti í stofunni andartak en svo tók Andrés af sér gleraugun og féllu þá stór tár niður vanga hans. — Nú get ég þá aftur lesið blessað orð, Drottins sjálfs, sagði hann titrandi klökkum rómi. Ég hefi þráð það, en Biblían hans sonar míns er með svo smáu letri, að ógerlegt hefir verið fyrir mig að lesa það, og sjaldan hefir nokkur haft tóm til að lesa fyrir mig. Ég þakka þér, Jón litli. Guð blessi þig um tíma og ei- lífð. — Hann afi minn gaf mér það, sagði Jón litli og ljómaði af gleði. —■ Já, það er rétt, sagði þá afi hans, en hann vildi heldur fá Biblíuna og gler- augun handa Andrési ,en jólagjöf handa sér sjálfum. — Guð blessi hann! endurtók Andrés gamli og fleiri orðum gat hann ekki upp komið. Þá var tekið upp það, sem í körfunni var, og gladdi það fátæka fjölskylduna, eins og nærri má geta. Að svo búnu héldu þau afi og mamma og Jón litli heimleiðis. Fögnuður fyllti hjörtu þeirra yfir morgunverkinu, en ekki veit ég hvert þeirra var glaðast. Um kvöldið fékk Steini bókina sína, Gunnhildur töskuna, Svenni litakassann og Eiríkur garðyrkjuáhöldin, ásamt jóla- gjöf frá pabba og mömmu, sem þau öll fengu. En Jón litli varð að sætta sig við faðmlag og blessunaróskir afa og jólagjöf foreldranna, og virtist honum það auðvelt, því að hann var jafnglaður og kátur og hin börnin þessi jól. W VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.