Vorið - 01.10.1974, Blaðsíða 22
Nú eru jólin í nánd svo að í rauninni
ætti ég að skrifa (segja ykkur) frá ein-
hverju jólalegu en í popinu er lítill grein-
armunur gerður, þó veit ég að Jackson 5
gáfu út eina gullfallega plötu eingöngu
með jólalögum fyrir 3 árum. Steve
Wonder á eina sem gefin var út um sama
leyti. En þó þær séu ekki nýjar þá eru þær
báðar unnar af negrum og tilfinningin eft-
ir því ,svo er ein ný með David Cassidy
sem er góður kunningi úr íslenska sjón-
varpinu (Söngelska fjölskyldan), en á
þeirri plötu eru bjög falleg jólalög.
En það sem gerðist hér á íslandi í
byrjun nóvember, þið munið eflaust eft-
ir því? Jú, það voru einmitt Slade sem
komu og héldu langbestu tónleika sem
haldnir voru í pop-stíl hér á landi. Peli-
can byrjuðu þessa tónleika en þeim mis-
tókst af einhverjum orsökum. Slade léku
í klukkutíma og tuttugu mínútur. Peir
voru í frumlegum fötum, t. d. Noddy
söngvari var í köflóttum jakkafötum allt-
of stuttum buxum og með pípuhatt og
lét eins og trúður. Dave sóló-gítarleik-
ari var í skærrauðum og hvítum prinsföt-
22
PISTILL
SLADE
um og háhæluðum skóm, já, á þeim hæstu
hælum sem ég hef nokkurn tíma séð,
hann var ekkert að leyna því. Strákarnir
náðu ágætri stemningu, fengu fólk til
að syngja með og klappa saman höndum
og stappa fótum. Þó var meira en helm-
ingur af fólkinu sem ekki tók þátt í
þessu með þeim og er ég viss um að þeim
hefur sjálfsagt leiðst, við íslendingar er-
um svolítið þungir að taka þátt í leikj-
um, en erum hrókur alls fagnaðar ef við
þorum að vera með.
Aðspurðir sögðust Slade hafa verið
hálf ragir við þessa hljómleika af tveim-
ur ástæðum. Sú fyrri var, að þetta voru
fyrstu tónleikarnir eftir 3ja mánaða hlé.
Peir voru að leika í kvikmynd og spila
inn á nýja mjög góða hljómplötu, sem
var að koma út.
Seinni ástæðan var sú, að trommarinn
varð minnislaus eftir bílslys, sem hann
lenti í fyrir rúmu ári og voru þeir hræddir
um að hann myndi jafnvel vera búinn
að gleyma einhverjum lögum. Peir sögðu
að hann þyrfti t. d. alltaf að hafa miða
hjá sér til að minna sig á hver hann væri.
VORIÐ