Vorið - 01.10.1974, Síða 6

Vorið - 01.10.1974, Síða 6
Anna Ölander: Uólagjöf Jóns litla Hann afi var kominn til þess að vera á prestssetrinu um jólahátíðina. það var langt síðan hann hafði verið þar, því að amma, konan hans, var búin að vera veik langa lengi, svo að hann gat aldrei farið frá henni. En nú var hún horfin til Guðs í himininn, og nú var afi kominn til þess að vera hjá dóttur sinni og tengdasyni um jólin. Steini, elsti sonur prestsins, mundi samt vel eftir afa og hversu ráðsnjall og góður hann var. Enginn var honum jafnsnjall, nema pabbi og mamma auðvitað! Steini minntist þess sérstaklega, þegar tromman hans datt í sundur og hann var ekki mönn- um sinnandi vegna þess óhapps, en mamma hans varð samt sárfegin, vegna þess að henni varð æfinlega illt í höfðinu af öllum hávaðanum í trommunni. Steina þótti að vísu illt að mamma skyldi fá höf- uðverk af þessu, því að hún var alltaf góð og ástúðleg, en hvað sem því leið, var það sára sorglegt að tromman skyldi fara svona. Hún var svo ljómandi falleg og litskrúðug, og það heyrðist í henni lang- ar leiðir, jafnvel alla leið til húss hringj- arans. Pegar þetta bar við, hittist svo á að afi var þar staddur. Hann hafði þá tekið Steina litla á hné sér og rætt við hann all- 6 lengi og sagt honum meðal annars að hann skyldi fá annað leikfang í staðinn, sem mömmu yrði ekki til óþæginda. Aulc þess sagði afi honum, að litlir drengif ættu að venja sig á að hugsa um aðra og taka tillit til þeirra en hugsa ekki ein- göngu um sjálfa sig og sína eigin ánægju. Frá þeirri stundu þótti Steina enn vænna um afa og ömmu en áður. Þegar svo afi gaf honum bát með rá og reiða, sem hann gat látið sigla á bæjar- iæknum úti og í þvottabalanum inni, var hann reglulega ánægður yfir því, að mamma þyrfti ekki að fá höfuðverk leng- ur hans vegna. En nú var Steini ekkert barn lengur, fullra þrettán ára! Næst honum komu þau Gunnhildur, Svenni og Eiríkur, og yngst- ur var Jón litli aðeins sex ára, enda ekki byrjaður á að læra að lesa. Hann var lít- ill og fremur veikbyggður líkamlega. Syst- kinin stóðu öll úti á dyraþrepunum, þegar afi kom og Jón litli að baki hinna. Hann var hálffeiminn við afa ,en það leið samt ekki á löngu þar til þeir urðu mestu mátar. Þegar setið var að morgunverði daginn eftir, sagði afi við systkinin, að þau skyldu öll koma inn til hans um hádegið og ræða við hann um það, hvað þau langaði mest til að fá í jólagjöf frá honum. En það yrðu VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.