Vorið - 01.10.1974, Page 26

Vorið - 01.10.1974, Page 26
nokkra, hve raargar hænur hún ætti. Bóndakonan svaraði: „Pegar ég gaf þeim í morgun og þær komu allar hlaupandi, sá ég eina hænu fyrir aftan tvær hæn- ur og eina hænu milli tveggja hæna.“ Hversu margar átti hún? GETUR PÚ SVARAD Leggið 10 fimmeyringa í röð á borð og færið þá síðan saman, hvern ofan á annan, tvo og tvo. Hver fimmeyringur, sem færður er, verður að flytjast yfir tvo fimmeyringa, en má ekki fara yfir fleiri en tvo. Svör við reikningsþrautum eru á bls. 74. Ryðgaða ■ / • v jarnid Bóndi nokkur fann eitt sinn ryðgaðan járnbút úti á akri. Hann hirti járnið og bar það heim 1 smiðju. Járnið sá spegil- fagran plóg við hliðina á sér. því þótti mikill munur á sér og plóginum og sagði: „Það er aumt að sjá, hvernig ég lít út. Það er munur að sjá þig. Hvernig ferð þú að því að vera svona spegil fagur?“ „Ég varð svona fágaður úti á akrin- um,“ sagði plógurinn. „Það er skrýtið,“ sagði járnbúturinn. „Þar hef ég einmitt verið líka, og þó sér ekki í mig fyrir ryði.“ „Hvernig getur staðið á þessu? Því oftar, sem ég kem út á akurinn, því meira gljái ég. Ég er alltaf spegilfagur, þegar ég er nýkominn þaðan. En heyrðu mig, hvað varst þú að gera úti á akri?“ „Ekki nokkurn skapaðan hlut,“ sagði ryðgaða járnið. „Ég bara lá þar.“ „Þá skal mig ekki .furða. Þú hefur ryðgað af iðjuleysi. Ég hef unnið og plægt jörðina. Þess vegna er ég svona spegilfagur. Ef ég hefði legið í leti og iðjuleysi, þá væri ég sjálfsagt alveg eins ljótur og ryðbrunninn og þú ert. 26 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.