Vorið - 01.10.1974, Page 27

Vorið - 01.10.1974, Page 27
Skrýtlur Roskin kona, mjög feit og gildvaxin var úti með kjölturakkann sinn. Þau þurftu bæði að viðra sig og fá ferskt loft. Seppi var svo fjörugur og hress, að hann sleit sig lausan og hljóp og hringsnerist í hundakúnstum og kátínu. Konan varð dauðhrædd um að hún mundi tapa honum og kallaði á strák, sem stóð skammt frá og horfði á seppa: — Heyrðu, drengur minn, ég skal gefa þér krónu ef þú hleypur fyrir mig eftir hundinum! — Pakka yður fyrir frú, en ég held, að ég hafi miklu meira gaman af að sjá yður sjálfa hlaupa eftir honum! ★ Jónsi litli, sex ára stubbur, var hróð- ugur mjög. — Mamma mín, sagði hann, ég þótt- ist vera póstur og lét bréf í hvern ein- asta bréfakassa í öllum húsunum í allri götunni. — Hvaða rugl er í þér blessað barn, segir móðir hans. Hvar fékkstu öll þessi bréf? — Bréfin, sagði Jónsi litli, þau fann ég í kommóðuskúffunni þinni. Pað var vafið rauðu bandi utan um þau. ★ Skoti (við Ástralíumann): Mér er sagt að það sé álitlegur hópur af Skotum í Ástralíu nú orðið. Ástralíumaðurinn: Jú, það er talsvert slangur af þeim, en versta plágan í Ástralíu er nú samt sem áður kanínurnar. Fjögra ára snáði er í heimspekilegum luigleiðingum og segir við mömmu sína: — Mamma, þegar ég er orðinn guð, þá ætla ég að sitja uppi í himninum og renna niður spotta og veiða marga stráka og draga þá upp og gera þá að engl- um og leika mér að þeim. ★ Kennari (við dreng á fermingaraldri): ,,Hvað Jærðu mikið í vexti af 10 krónum ef þú lætur þær liggja í banka í þrjú ár gegn 41/2% vöxtum á ári hverju?“ Nemandinn hugsar sig um. Kennarinn: ,,Hvers vegna reiknarðu ekki drengur?“ Nemandinn: ,,Ég held bara, að það borgi sig ekki að vera að 'reikna út ann- að eins smáskítti og þetta.“ ★ Maðurinn: Ég hef ekkert sofið. Kött- urinn var að skrölta uppi á lofti í alla nótt. Ég þyrfti að fá einhverjar pillur. Konan: Handa þér eða kettinum? ★ Dóri: Blessaður, hafðu ekki orð á því, sem ég var að segja þér. Pað er leyndar- mál, sem ég hef lofað að þegja yfir. Siggi: Mikil ósköp, ég skal vera eins þagmælskur og þú. ★ Kennarinn: Hver var í vondu skapi, þegar glataði sonurinn kom heim? Palli: Alikálfurinn. VORIÐ 27

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.