Vorið - 01.10.1974, Page 39

Vorið - 01.10.1974, Page 39
GRÝLUKVÆÐI eftir Jóhannes úr Kötlum Grýla hét tröllkerling leið og ljót, með ferlega hönd og haltan fót. í hömrunum bjó hún og horfði yfir sveit, var stundum mögur og stundum feit. Á börnunum valt það hvað Grýla átti gott, og hvort hún fékk mat í sinn poka og sinn pott. Um annað, sem gerðist þar, enginn veit, — en Grýla varð samstundis södd og feit. Hún hló, svo að hötraði hamarinn, og kyssti hann L^ppalúða sinn. Svo var það eitt ?inn um einhver jól, að börnin fengu buxur og kjól. Og þau voru öll svo undurgóð, 1 að Grýla varð hrædd og hissa stóð. 1 En við þetta lengi lengi sat, í fjórtán daga hún fékk ei mat. Þá varð hún svo mikið veslings hró, að loksins í bólið hún lagðist — og dó. En Leppalúði við bólið beið, — og síðan fór hann þá sömu leið. Nú íslenzku börnin þess eins ég bið, að þau láti ekki hjúin lifna við. Ef góð voru börnin var Grýla svöng, og raulaði ófagran sultarsöng. Ef slæm voru börnin varð Grýla glöð, og fálmaði í pokann sinn fingrahröð. Og skálmaði úr hamrinum heldur gleið, og óð inn í bæina — beina leið. Þar tók hún hin óþekku angaskinn, og potaði þeim nið’r í pokann sinn. Og heim til sín aftur svo hélt hún fljótt, — undir pottinum fuðraði fram á nótt. VORIÐ VORIÐ 39

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.