Vorið - 01.10.1974, Page 62

Vorið - 01.10.1974, Page 62
armálinu, þar sem báturinn beið, sneri hann sér við, en hesturinn stansaði um leið. Drengurinn gekk nú aftur á bak skref fyrir skref, og steig svo varlega upp í skutinn á bátnum og sleppti ekki augunum af hestinum. „Róið þið nú hægt út,“ hvíslaði hann að mönnunum. þegar báturinn seig hægt frá landi, kallaði Alek: „Komdu nú, Kolskeggur — komdu nú!“ Hesturinn dansaði þarna fram og til baka í flæðarmálinu, reisti makkann, skvetti taglinu og sperrti eyr- un. Svo reis hann á afturfæturna og stökk út í sjóinn. Eins og kólfi væri skotið þaut hann svo aftur til baka upp í fjöruna. Hann sparkaði frá sér, svo að sandurinn rauk, en hann sleppti ekki augunum af bátnum á meðan. Svo tók hann undir sig stökk upp fjöruna en sneri jafn skyndilega við aftur. Alek var ljóst, að hesturinn átti í hörðu stríði. Hann flautaði nú á hann og strax stansaði Kolskeggur og svaraði með háu hneggi. Báturinn var nú kominn spölkorn frá landi. Allt í einu prjónaði folinn og áður en nokkurn varði, var hann kominn á sund og stefndi á bátinn. „Komdu, Kolskeggur!“ hrópaði Alek „komdu nú!“ „Róið nú um borð, skipstjóri,“ sagði Alek, en sleppti aldrei augunum af hest- inum. Svarti hausinn reis hátt úr sjónum. Þeir slepptu hvorugur augunum af öðr- um. Pessi stóri skrokkur klauf vatnið, og fæturnir gengu eins og bullustengur í eimvél. Þeir nálguðust nú skipið. Skipstjór- 62 inn og mennirnir þrír flýttu sér upp stig- ann, en Pat var kyrr í bátnum hjá Alek. „Haldið honum svona í nokkrar mínút- ur,“ hrópaði skipstjórinn til þeirra. Hesturinn var nú kominn alveg að bátnum og Aleg gat lagt höndina á haus- inn á honum. „Pú varst duglegur — þú varst góður,“ hvíslaði hann í eyra hests- ins og átti fullt í fangi með að leyna geðs- hræringunni. Svo heyrði hann skipstjór- ann gefa fyrirskipanir uppi á þilfarinu og sá, að það var verið að losa uppskip- unartækin og þarna hékk „stroffa“ í bómunni og átti nú að spenna gjörðina undir kvið Kolskeggs. Hann skyldi geta komið stroffunni á Kolskegg! Alek sá, að hesturinn fór að ókyrrast, og allt í einu synti hann burt frá bátnum. Alek hrópaði á hann í örvæntingarfull- um ákafa. Pegar stroffan var komin niður, greip Pat í hana og fór að lagfæra hana. „Við verðum að koma stroffunni á hann,“ hrópaði hann til drengsins. „Annars get- um við ekki komið hestinum um borð.“ Alek fannst höfuðið á sér vera að springa. Margs konar hugsanir sóttu að honum. Það skyldi samt vera einhver leið til að koma stroffunni á hestinn! Nú sneri hann aftur við og synti að bátn- um. „Bara að ég geti komist undir hann.“ hugsaði Alek, en kallaði svo til Pats: „Láttu mig fá stroffuna og dálítið lengra reipi!“ Pat rétti honum stroffuna og gaf mönnunum á þilfarinu merki. „Og hvað ætlar þú svo að gera?“ spurði hann. Alek virtist ekki hafa heyrt þessi síð- ustu orð Pats. Hann greip stroffuna. „Eg VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.