Vorið - 01.10.1974, Side 67

Vorið - 01.10.1974, Side 67
„Hafðu ekki áhyggjur af því, Alek minn,“ svaraði Pat. Pegar þeir komu aftur um borð, fór Alek rakleitt til skipstjórans. Hann sat í skipstjórnarherberginu við skrifborðið sitt og blaðaði í ýmsum skjölum. Hann leit upp, og þegar hann sá, hver kominn var benti hann drengnum að fá sér sæti, en hélt áfram að fletta blöðunum og skrifa. Loks leit hann upp frá verkinu, hallaði sér aftur á bak í stólnum og sagði: „Jæja drengur minn. Þá skiljast nú vegir.“ „Já,“ svaraði Alek. „Við Pat fórum og náðum í peningana og farmiðann, og það er allt í lagi.“ Hann stakk hendinni í vasann og náði í aurana sína. „Þetta — þetta er allt, sem ég á eftir — því — pabbi og mamma vissu ekki neitt um fol- ann og þau hafa bara sent rúmlega fyrir mínu fari, svo að þetta hrökk rétt fyrir farinu fyrir okkur báða.“ „Og nú ert þú að vandræðast yfir því, hvernig þú eigir að borga okkur?“ flýtti skipstjórinn sér að grípa fram í. „Já,“ svaraði Alek. „Ef þið hefðuð ekki komið, væri ég enn á eynni.“ Skipstjórinn stóð upp og gekk yfir til drengsins. Hann lagði höndina á öxlina á honum. „Pú skalt ekki vera að hugsa um þetta, væni minn, við ætlumst ekki til neins í því efni — við höfum haft meiri ánægju af ykkur en svo, að það er ekki alltaf sem svona ævintýri gerast á sjó.“ Hann brosti og gekk fram að dyr- unum. „Nú skalt þú bara hugsa um að komast heim heilu og höldnu þá er ég alveg ánægður.“ „Þakka yður þærlega fyrir, skipstjóri,“ sagði Alek og fór út á þilfarið. „Láttu nú engan stela folanum frá þér,“ kallaði skipstjórinn á eftir hon- um. „Lofaðu mér því!“ „Já, því skal ég lofa yður, skipstjóri,“ svaraði Alek. Daginn eftir leiddi Alek þann svarta niður landganginn. Hann hélt í múlinn og talaði vingjarnlega við hann. Skipið, sem átti að flytja þá til New York, hafði komið upp um nóttina og var nú verið að losa það. Pat og nokkrir skipverjanna stóðu þarna á hafnarbakkanum, þegar hest- urinn og drengurinn komu niður. Þeir kvöddu allir Alek og óskuðu honum alls góðs, og að lokum var Pat einn eftir hjá honum. „Vertu nú blessaður og sæll, Alek minn,“ sagði Pat, „og farðu nú varlega.“ Alek lofaði því, „en mundu, að þú ert búinn að lofa að heimsækja mig, Pat, þegar þú kemur til NewYork.“ „Það getur vel verið að ég geri alvöru úr því einhvern góðan veðurdag,“ sagði Pat, „þegar ég er orðinn leiður á sjón- um.“ Pat þagnaði allt í einu. „Hvað ætl- arðu einginlega að gera við þann svarta, þegar þú kemur til New York?“ bætti hann svo við og horfði spyrjandi augum á drenginn. „Það veit ég nú varla, Pat. Ég er eig- inlega ekki farinn að gera mér grein fyr- ir því enn, en ég vona bara, að pabbi og mamma lofi mér að hafa hann áfram.“ Pat leit á folann. „Þetta er kappreiða- hestur — ég skal bölva mér upp á það, að hann mundi setja allt á annan end- VORIÐ 67

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.