Heima er bezt - 01.12.1965, Síða 48

Heima er bezt - 01.12.1965, Síða 48
451. Glappaskot á ný! Og við hrind- ingu mína bregzt skotmanni einnig jafn- vægið, svo hann steypist endilangur ofan í lónið. Eg tek sprettinn meðan hann er að skríða upp úr aftur. 452. Mér dettur skyndilega bragð í hug: Eg sný mér við, lyfti endum tveggja plankanna og læt þá bomsa niður í lón- ið . . . . Nú getur Þorpa-Línus ekki elt okkur lengtir! 453. Að klukkustund liðinni er ég kom- inn svo langt burt frá kofa Þorpa-Línus- ar, að ég þykist algerlega öruggur fyrir honum og tvíhleypunni hans. Síðan held ég áfram eitthvað út í bláinn. 454. Mér dettur ekki í hug að snúa lieim aftur til Hauks lögmanns og ráðs- konu hans. Ég held áfram allan daginn. Síðdegis spyr ég ungan bónda sem ég hitti, hvort hann hafi ekki einhverja vinnu handa mér? 455. Vinnu? Jú, ég hekl nú það, segir bóndinn vingjarnlega. Hér er næg vinna handa mörgum. — Svo sýnir hann mér, hvað ég eigi að gera, og ég geng að vinn- unni með glöðu geði. 456. Ég var víst búinn að vinna að hey- hirðingunni tvo—þrjá tíma, er ég allt í einu heyri hljóð og hróp neðan frá ánni skammt frá bænuin. Ég heyri einnig í Mikka ásamt þessum hrópum. 457. Hvað er nú um að vera? Ég hleyp ofan að ánni og sé óðar, hvað skeð hef- ur: Litla dóttir bóndans hefur laumast til að skríða út á fjalafleka við árbakk- ann, hann síðan losnað og rekur nú hratt fyrir straumi ofan ána. 458. Hér er háski á ferðum! Skammt fyrir neðan bæinn er allmikill foss í ánni, sem enginn til þessa hefur farið lifandi upp eða ofan fyrir. Er þá engin björgunarvon fyrir telpuna litlu? 459. „Hvað sem það kostar, mun ég reyna að bjarga henni," lirópar faðir hennar. En er hann ætlar að varpa sér í ána, grípa hann tveir menn nærstaddir. Þetta væri hreint sjálfsmorð, segja þeir.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.