Heima er bezt - 01.06.1998, Blaðsíða 40
Málverk og glerlistaverk eftir
Guðlaugu Sveinsdóttur
Sjá forsíðuviðtal blaðsins.
Vetrarkyrrð
Úr Öræfasveit
Blómamynd
Glerlistaverk
Sumarnótt
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■
Vilhjálmur G. Skúlason:
Undir merki lífsins
Þessi bók fjallar um líf og störf heimskunnra vísindamanna, sem allir eiga það
sameiginlegt að hafa skipað sér óumdeilanlega „undir merki lífsins,“ fórnað lífi
sínu og starfskröftum í þágu heildarinnar, mannkyni öllu og komandi kynslóðum
til ævarandi heilla og hamingju. Allir hafa þessir vísindamenn átt stóran þátt í
að bægja sjúkdómum, hungri og fátækt frá dyrurn fjöldans og þannig lagt grunninn
að lífshamingju og fegurra mannlífi þeirra, er til þess báru gæfu að fá notið
ávaxtanna af erfiði þeirra.
Með vísindaafrekum sínum ruddu þessir ffumherjar brautina, oft við hinar
erfiðustu aðstæður, sköpuðu nýja möguleika, sem þeir, er á eftir þeim komu og
í anda þeirra störfuðu, gátu
byggt á og aukið við.
Þeir vísindamenn, sem hér er
minnst, eru m.a.:
Domagk, Pelletier, Lavoisier,
Pasteur, Ehrlich, Koch, Florey,
Semmelweis, Sertiirner,
Paracelsus, Jenner, Whöler, Lister,
Perkin, Chain, Waksman, Scheele
og Fleming.
Hér er fjallað um efni, sem lítt
hefur verið aðgengilegt íslenskum
lesendum lengst af og jafnframt
bætt úr tilfinnanlegri þörf lesefnis
um hina stórstígu framfarasögu
lyfja- og læknisfræði, sem og
ævikjör þeirra frumherja
vísindanna, sem svo ótrauðir
vörðuðu veginn og börðust „undir
merki lífsins."
Kormákur Sigurðsson:
Skjaldborg
Ármúla 23- 108 Reykjavík - Sími 588-2400
BÓKAÚTGÁFA
Hér er góður andi
Þessi bók undristrikar mikilvægi fagurra hugsana, vammlauss lifs og gildi hins
gó*ða. Hún hefst á spjalli við mannvininn séra Halldór Kolbeins, sem var á marga
lund óvenjulegur maður er tók ávallt andann fram
yfir efnið og lifði eftir
kormakur
SIGURÐSSöi
hér
góður
aiudi
kenningum sínum. En að
meginhluta er bókin safn
drauma, frásagna og viðtala
um dulræn efni.
Sögumenn eru Andrés B.
Helgason bóndi, Axel
Helgason módelsmiður,
Arsæll Kr. Einarsson
lögregluþjónn, Björgvin
Jónsson forstjóri, Gísli
Pálmason kj al laramei stari,
Hjörtþór Ágústsson
rafvirkj am e i stari, Lúther
Hróbjartsson umsjónarmaður
Austurbæj arskólans í
Reykjavík, Matthías
Matthíasson verkstjóri og
Sigurður Haralz rithöfundur.
Tilboð til óskriíenda HEB
kr. 99
Bóðar baekurnar
:nd\ngarg\a\a
Auk þess er spjall við
völvuna Þorbjörgu
Þórðardóttur um
dulræna reynslu
hennar.
SERSTAKUR
PONTUNARSEÐILL FYLGIR
BLAÐINU