Heima er bezt - 01.06.1998, Síða 29
Umsjón: Ingvar Björnsson
4
iSKDIFANDI
HðKDUNGSINS
Annar ársfjórðungur 1998 Landshluti: Vesturland
Verðlaunaáskrifandi:
Kristjana Sigríður
Vagnsdóttir,
Sveinseyri,
471 Þingeyri.
Verðlaun:
Faðir minn...
6 binda ritsafn.
Að þessu sinni er viðmælandi
minn Kristjana Sigríður
Vagnsdóttir, að Sveinseyri
við Dýrafjörð, fædd að Osi í Mosdal
við ArnarQörð, 8. mars 1931.
Kristjönu segist svo frá: „Foreldr-
ar mínir voru hjónin Vagn Þorleifs-
son bóndi, fæddur 23. ágúst 1899 í
Hokinsdal við Arnarfjörð og Bjarney
Sólveig Guðbjörnsdóttir frá Bæ í
Bæjarnesi á Barðaströnd, fædd 22.
september 1904.
Foreldrar íoður míns voru hjónin
Þorleifur Jónsson frá Steinanesi við
Arnarljörð og kristín Egilsdóttir.
Foreldrum mínum varð 12 barna
auðið en auk þess átti faðir minn
einn son frá fyrra kærleikssambandi,
móðir drengsins andaðist er hann var
aðeins þriggja nátta.
Eiginmaður minn var Elías Mikael
Vagn Þórarinsson, fæddur 2. maí
1926 að Hrauni í Keldudal við Dýra-
Qörð.
Foreldrar hans voru Sigríður Mika-
elsdóttir, er fædd var að Móum í
Keldudal og Þórarinn Vagnsson frá
Fjarðarhorni á Barðaströnd.
Elías var mikill hagyrðingur og
skáld, þjóðhagasmiður, smíðaði
marga súðbirta trébáta. Við eignuð-
umst 8 börn, sem eru nú á aldursbil-
inu 31-46 ára.
Elstur er Páll Sveinbjörn, búsettur í
Reykjavík, Skúli Arnbjörn, skipstjóri
við Nýfundnaland, Gunnhildur
Björk, búsett á Þingeyri, Þorgerður
Herdís, búsett í Reykjavík, Kristín
Auður, býr á Þingeyri, Sigþór Valdi-
mar, skipstjóri við Nýfundnaland,
Hrólfur Arnþór, netamaður, á leið til
Nýfundnalands, Hrafngerður Ösp,
búsett á Þórshöfn.
Elías andaðist 6. júlí 1988. Á ferli
sínum smíðaði hann ljölmarga báta
og að Sveinseyri nýtti hann sér
hlöðu- og pakkhúsplássið sem þar
var til staðar.
Stærsti báturinn sem hann hóf
smíði á var 9,9 smálestir en við hana
lauk hann ekki. Sök á því átti hin
marg umtalaða fiskstýringarsteína
yfirvalda, er kippti grundvelli undan
þeim atvinnuvegi sem smíði minni
fiskibáta hafði verið um dagana, allt
frá fyrstu Islandsbyggð.
Aðalstörf mín í gegnum ævina
voru eftir röð þessi:
Unglingsárin fóru í hefðbundin
sveitastörf í föðurgarði, þá fór ég í
vist, síðan komu húsmóður- og land-
búnaðarstörf, og nú er þetta blandað
kerfi, eins og sagt er, ég er húsmóðir,
bóndi og fiskvinnslukona.
Til gamanS langar mig til að rekja
þetta ögn nánar.
Að Ósi í Mosdal átti ég heima til
13 ára aldurs en þá fluttu foreldrar
Heima er bezt 229