Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1971, Side 12

Æskan - 01.05.1971, Side 12
,,Að hafa hverja?“ spurði sá þriðji. ,,Já, hvaða gagn er þá að peningunum þínum? Allt þitt líf hefur ekki gengið út á annað en að spara og nurla saman fé. Einn góðan veðurdag mun ein- hver strá þeim eins og ösku út í veður og vind. Já, þú munt aldrei hafa neina ánægju af allri þinni ágirnd!“ ,,Sagðirðu ágirnd?“ Munnur hins stóð opinn af undrun. ,,Já, þú og ágirndin eruð eitt. Á ég virkilega að þurfa að koma þér í skilning um það, sem þú ættir bezt að vita?“ Þriðji maðurinn stundi. ,,Ég sem þræla mér út og spara og spara til að sjá heimili mínu farborða, og þú — þú kallar þetta ágirnd!“ „Já, þú ert ágjarn. Spurðu bara hvaða barn sem er hér í götunni. Þú ert nirfill! Og börn þín bíða að- eins eftir því að þú fallir frá.“ ,,Og þá heldur þú, að peningunum verði eytt?“ ,,Já, fyrir þeim mun fara alveg eins og víninu, sem flýtur hér um gólfið.“ ,,Ég held ég sé byrjaður að trúa þér,“ sagði þriðji maðurinn eftir stutta þögn. ,,Ég fer nú og hugsa ráð mitt, en ég kem seinna. Ég bið þig að hugsa ekki illa til mín þangað tii.“ Jakob blindi heyrði nirfilinn yfirgefa krána, og hann flýtti sér áfram, því hinn ókunni var kominn langt á undan honum. Lengra niður eftir götunni heyrði Jakob blindi hróp og köll. Viti sínu fjær af reiði var kona ein að skamma mann sinn. Konan bölvaði manninum og lét reiði sína bitna á barni þeirra, sem hún hrinti til og barði. Maðurinn hrópaði á móti, og barnið veinaði og grét. En skyndilega datt allt í dúnalogn. Maðurinn fór að hlæja og sagði því næst blíðlega: „Maturinn er seint á ferðinni, súpan er köld, og ég ræð ekki við skap mitt, og hver er svo niðurstaðan?" ,,Já, satt segir þú,“ anzaði konan með grátstaf í kverkunum. ,,Þú verður vondur, og ég bölva þér af því að þú vilt ekki taka þessu með skynsemi. Súpu- potturinn sprakk í sundur, og ég missti helminginn af súpunni niður, áður en ég gat hellt henni í annan pott, og þess vegna var maturinn ekki tilbúinn á rétt- um tíma. Óréttmæt reiði þín kom þessu öllu af stað.“ Hún faðmaði að sér barnið, sem hún hafði verið að berja, og grét fögrum tárum út af miskunnarleysi sínu. „Við erum bæði mikil flón,“ sagði maðurinn. „Get- ur þú fyrirgefið mér?“ Jakob blindi hélt áfram, og allt í einu var hann staddur á miðju sölutorginu. Nokkrir voru að selja varning sinn og aðrir að kaupa hann, og menn prútt- uðu um verðið á vörunum. Raddir úr öllum áttum klingdu í eyrum hans. „Bíddu, þú þarna,“ heyrði hann einn kaupmanninn kalla. „Ég laug að þér, ég gaf UPP rangt verð. Hér er rétta verðið. Það er satt sem ®g segi, en þú getur gert hvort þú vilt heldur, látið vor- una liggja eða tekið hana.“ — „Já, ég tek þetta núna, en ég vissi, að þú varst að Ijúga áðan.“ Úr annarri átt heyrði blindi maðurinn, að g°rn eggjasölukona kallaði á viðskiptavin sinn með þessum orðum: „Staldraðu við! Það er ekki rétt tala á eggjun um í körfunni þinni. Taktu þessi tvö í viðbót, þá er talan rétt.“ Og blindi Jakob hélt áfram. Enn heyrði hann föd > ffer sem sagði: „Sá, sem hefur glatað einhverju og það aftur, verður feginn, og hér kem ég til að gleðJ3 Þig.“ t „Og með hverju ætlar þú að gleðja mig?“ heyro|S önnur rödd segja. * „Það er mjög einfalt." Gullpeningur féll klingjan 1 á borðið. „Hérna, taktu hann, þú átt hann.“ „Já, sem ég er lifandi, en hvernig víkur þessu við?“ „Spyrðu mig ekki, en vertu glöð, það sem var týn hefur þú fengið aftur.“ „En hvernig stendur á því, að þú ert með hann- „Ég gæti svo sem sagt þér, að ég hafi fundið hann og einhver hafi sagt mér, að þú hafir týnt honum- gæti líka sagt þér, að peningurinn þinn hafi skopP ofan af borðinu þínu og ég hafi tekið hann upp- verið svo önnum kafinn við mitt söluborð, að ég BQ að en haf' ekki mátt vera að því að skila honum fyrr en nú. 0® ég gæti sagt þér ótal aðrar sögur — allar trúlegar' En nú finnst mér allt í einu miklu auðveldara að segJa sannleikann.“ „Hver er þá sannleikurinn?" „Ég stal gullpeningnum frá þér fyrir nokkrum um. En í kvöld kom yfir mig svo einkennileg tilfinm’n9_ Mér fannst ég vera svo auvirðilegur, og mér fann sem peningurinn brenndi mig, þar sem hann lá í pyn9J minni. Nú er ég feginn að geta skilað þér honum, hér hefur þú annan pening í skaðabætur, það le samvizku mína.“ Lúðraþytur truflaði raddirnar. Það var merkið u^| að borgarhliðinunum yrði lokað. Jakob blindi heyr ^ varðmennina koma frá aðalstöðvunum, og úr turnunum hljómuðu klukkurnar, það var síðasta mer^ ið — dagurinn var liðinn. Kaupmennirnir flýttu ser taka saman vörur sínar. Hinn ókunni gekk hratt m aðalgötuna, og Jakob blindi fylgdi honum fast Þá heyrði hann enn eina rödd, sem virtist koma opnum glugga neðst í götunni: fra „Ef ég hef verið slæmur húsbóndi, þá bið ég y^ fyrirgefningar. En dagar ykkar og tími tilheyrði ^ 12

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.