Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1971, Side 22

Æskan - 01.05.1971, Side 22
Hreysikötturinn litli, sem aðeins vildi leika sér r steindysinni stóru Iijá Fellsseli bjó eitt sinn hreysikattarijölskylda. Það voru foreldrar nteð sex kettlinga. Kettlingarnir höfðu ekki frið eiti 'einasta andartak, nema þegar Jjeir sváfu. Löngu, liðugu kropparnir þeirra voru á stöðugri hreyf- ingu. Sex forvitin, lítil andlit gægðust alltaf (iðru hverju út á milli steinanna og horfðu í allar áttir til þess að geta séð eins mikið og unnt var at hinni stóru, undarlegu veröld, sem var fyrir utan. Morgun einn sagði hreysikattamamma við kettlingana sína: „Nú hefur pabbi lagt af stað í langa ferð. I dag eigið þið að fara með mér yfir vatnið. Ég veit um fuglshreiður með mörgum fallegum eggjum í. Það verður kannski eitt handa hverju okkar.“ Kettlingarnir hvæstu af gleði og fögnuði, og svo hlupu þau öll af stað. Þegar þau komu niður að vatninu, fann hreysikattamamma fjöl, sent hún bar út í það og kom fyrir rétt við vatnsbakkann. Síðan kallaði hún á kettlingana sína og sagði: „Nú skuluð þið allir setjast gætilega hérna á fjölina." „Er það ekki hættulegt?" spurðu kettlingarnir. „N'ei, nei, treystið þið bara á mig,“ sagði mamma þeirra. Kettlingarnir komu sér nú fyrir á fjölinni, og mamma þeirra ýtti henni út á vatnið. Síðan lagðist hún til sunds og ýtti fjölinni á undan sér. Kettlingarnir hlógu og skemmtu sér ágætlega, en þeir sátu alveg kyrrir, því að þeir voru hræddir við að detta í vatnið. Hinum megin við vatnið fundu þau fuglshreiðrið. í Jtví voru sex ofurlítil egg. Hreysikattamamma skipti þeint bróðurlega milli kettlinganna. Sjálf var hún dálítið von- svikin á svip. „Fuglamamma hefði vel getað verpt einu eggi handa mér líka,“ sagði hún. Svo leitaði hún víðai og fann þá annað hreiður í viðbót. Og í þyí hreiðri voru sex litlir ungar. „Við étum þá líka,“ sagði hún við kett- lingana sína. „Fuglamamma getur sem bezt verpt öðrunt eggjum og ungað út á ný! Gjörið svo vel!“ Síðan skip11 hún ungunum á milli þeirra, og þá var hreiðrið tóöit- „En hamingjan góða, ég fékk ekkert heldur í þetta sinn," sagði lueysikattamamma og var mjög vonsvikin um stund. „Ojæja, það gerir ekkert til, ég hlýt að finna eitthvað seinna," sagði hún. „Það skiptir mestu máli, þið fáið nóg að borða." Hreysikettirnir léku sér löngum í steindysinni storu hjá Fellsseli og fór vel fram. Morgun einn um haustið sagði hreysikattamamma: „f dag verðum við að fara og safna okkur matarforða, börnin mín. Þið vitið, að nú kemur veturinn innan skamms, og Jrá verður engin egg að fá eða fuglsunga- Og þá er gott að hafa annan mat á heimilinu." „Já, það skulum við gera,“ sögðu fimm kettlingar 1 kór. En sá sjötti, sem nefndur var Nebbi, fór að nöldra- „Úff, eigunr við enn að fara að safna matarforða! Ég miklu heldur leika mér,“ sagði hann. „G'etum við ferða/.t um vatnið í dag, mamma?" „Þú getur ekki alltaf leikið Jrér, vinur minn,“ svaraði ntóðir hans. „Lífið er ekki eingöngu leikur og gaman. „Jú, Jjað finnst mér einmitt," svaraði Nebbi. „Það ell‘ bara Jreir fullorðnu, sem gera Jrað oft svo leiðinlegt. „Ég hlusta ekki lengur á Jretta rugl,“ sagði móðirin- „Komdu, nú leggjum við af stað.“ Svo stukku þau öll út úr steindysinni og fóru að afl*1 nratfanga í skóginum stóra. Þegar þau höfðu gengið nokkra stund, hugsaði Neb*31 nteð sjálfum sér: „Nú laumast ég frá þeim hinum og fel minna eigin ferða. Það er miklu skemmtilegra. Það el svo leiðinlegt að safna matarforða." Og svo hljóp hann burt frá Jreim hinum. Eftir nokkia stund liitti hann ungan héra, sem var að safna græm1111 blöðum, og lagði Jtau í stafla fyrir framan sig. „Góðan dag! Hvað h'eitirðu?" spurði Nebbi. 22

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.