Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1971, Page 27

Æskan - 01.05.1971, Page 27
í^rei o( vel. Og lagið, sem ég sendi ykkur núna, er við vísurnar ans Armanns Kr. Einarssonar, þar sem hann minnir ykkur á að ara aldrei yfir götu, fyrr en þið hafið gáð vel að, hvort ykkur sé °heett. ^9 vona svo, að ykkur gangi eins vel að læra þennan um- erðarsöng og þann síðasta. Kær kveðja INGIBJÖRG. TVÆR UNGAR DROTTNINGAR Erla Guðjónsdóttir umferðardrottning (til vinstri) og Stella María Thorarensen fegurðardrottning. Á gangi Úr leikritinu KRAKKAR í KLÍPU eftir ÁRMANN KR. EINARSSON. Lag: INGIBJÖRG ÞORBERGS. Alltaf man ég einfalt ráð, altlrei hleyp ég yfir veg, D7 G fyrr en allt í kring hef gáð. D7 G Tra, la, la, tra, la, la, tra, la, la. D7 G Fyrr en allt í kring hef gáð. C G C D7 G Kring hef gáð. Kring hef gáð. G Avallt sýnum alla gát, lífið aðeins leikur er, D7 G ef við lifum hraust og kát. D7 G Tra, la, la, tra, la, la, tra, la, la. D7 G Ef við lifum hraust og kát. C G C D7 G Hraust og kát. Hraust og kát. Prófessor Richard Beck skrifar til Æskunnar: Fyrir nokkrum dögum barst mér febrúarhefti Æskunnar með beztu skilum, og þakka ég hjartanlega fyrir að senda mér hana ,,efri leiðina". Ég hefi lesið hana nú sem áður mér til mikillar ánægju. Hún heldur sannarlega í horfi um fjölbreytt og skemmtilegt lesmál, og prýðisvel við hæfi hinna ungu lesenda, sem hún er sérstaklega ætluð, og vafalaust lesa margir foreldranna hana einnig sér til ánægju. Eftir að hafa lesið þetta nýjasta hefti hennar, hurfu mér meðfylgjandi vísur í hug, og sendi ég þær sem kveðju og þökk yfir hafið. Yngist mér hugur Yngist mér hugur, þá ,,Æskan“ austan um heiðþláa geima fljúgandi kemur af Fróni fegurðarríku og kæru. Ber hún í vængjanna blaki blæhvísl úr hlíðunum grænum, ölduhjal úti við tanga, elfanna og fossanna niðinn. Þökk vil ég gestinum góða gjalda, er yngdi mér huga. Heill sé þér, íslenzka æska, ættjarðar fegursti draumur! Richard Beck. 27

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.