Æskan - 01.05.1971, Qupperneq 27
í^rei o( vel. Og lagið, sem ég sendi ykkur núna, er við vísurnar
ans Armanns Kr. Einarssonar, þar sem hann minnir ykkur á að
ara aldrei yfir götu, fyrr en þið hafið gáð vel að, hvort ykkur sé
°heett.
^9 vona svo, að ykkur gangi eins vel að læra þennan um-
erðarsöng og þann síðasta.
Kær kveðja
INGIBJÖRG.
TVÆR UNGAR DROTTNINGAR
Erla Guðjónsdóttir umferðardrottning (til vinstri)
og Stella María Thorarensen fegurðardrottning.
Á gangi
Úr leikritinu KRAKKAR í KLÍPU
eftir ÁRMANN KR. EINARSSON.
Lag: INGIBJÖRG ÞORBERGS.
Alltaf man ég einfalt ráð,
altlrei hleyp ég yfir veg,
D7 G
fyrr en allt í kring hef gáð.
D7 G
Tra, la, la, tra, la, la, tra, la, la.
D7 G
Fyrr en allt í kring hef gáð.
C G C D7 G
Kring hef gáð. Kring hef gáð.
G
Avallt sýnum alla gát,
lífið aðeins leikur er,
D7 G
ef við lifum hraust og kát.
D7 G
Tra, la, la, tra, la, la, tra, la, la.
D7 G
Ef við lifum hraust og kát.
C G C D7 G
Hraust og kát. Hraust og kát.
Prófessor Richard Beck
skrifar til Æskunnar:
Fyrir nokkrum dögum barst mér febrúarhefti Æskunnar
með beztu skilum, og þakka ég hjartanlega fyrir að senda
mér hana ,,efri leiðina". Ég hefi lesið hana nú sem áður
mér til mikillar ánægju. Hún heldur sannarlega í horfi um
fjölbreytt og skemmtilegt lesmál, og prýðisvel við hæfi
hinna ungu lesenda, sem hún er sérstaklega ætluð, og
vafalaust lesa margir foreldranna hana einnig sér til
ánægju.
Eftir að hafa lesið þetta nýjasta hefti hennar, hurfu mér
meðfylgjandi vísur í hug, og sendi ég þær sem kveðju og
þökk yfir hafið.
Yngist mér hugur
Yngist mér hugur, þá ,,Æskan“
austan um heiðþláa geima
fljúgandi kemur af Fróni
fegurðarríku og kæru.
Ber hún í vængjanna blaki
blæhvísl úr hlíðunum grænum,
ölduhjal úti við tanga,
elfanna og fossanna niðinn.
Þökk vil ég gestinum góða
gjalda, er yngdi mér huga.
Heill sé þér, íslenzka æska,
ættjarðar fegursti draumur!
Richard Beck.
27