Æskan - 01.05.1971, Síða 55
Ljósmóðir
1 bréfi frá H. B. í Reykhólasveit er spurt
^n'i störf Ijósmæðra, hvar hægt sé að læra
pað starf og hve langan tíma námið taki.
'-jósmæðraskóli íslands er til húsa í
ar,óspítalanum í Reykjavík. Námið í hon-
Urn tekur tvö ár og búa nemendur í heima-
Vlst skólans. Námið hefst 1. október að
hausti og stendur til maíloka. Ekkert skóla-
gjald þurfa nemendur að greiða, en fá hins
vegar rúmlega 7 þúsund krónur í kaup á
mánuði fyrra árið, en rúmlega 10 þúsund
síðara árið. Skólinn greiðir öll tryggingar-
gjöld nemenda.
Undirbúningsmenntun er gagnfræðapróf
eða landspróf, og þurfa einkunnir í íslenzku
og dönsku helzt að vera sæmilega góðar.
Inntökualdur er 20—30 ár.
Stúlka, sem vill gerast Ijósmóðir, þarf
að vera vel hraust, bæði andlega og lík-
amlega. Hún þarf að vera athugul og þolin-
móð og hjálpfús að eðlisfari, skarpa dóm-
greind þarf hún að hafa og vera glögg-
skyggn á það, hvort fæðing sé eðlileg. Sé
um afbrigðilega fæðingu að ræða, þarf
hún oft að taka skjótar ákvarðanir um það
að kalla lækni til aðstoðar. — Vinnutími
Ijósmóður verður af skiljanlegum ástæðum
oft óreglulegur, því að hún má búast við
að vera kölluð til starfa á hvaða tíma sólar-
hringsins sem er.
Ljósmæður munu taka laun eftir 14.
launaflokki opinberra starfsmanna.
VÖRUGÆÐUNUM má ætíð treysta
ÞRÍHJÓLIN
vinsælust og bezt. Varahlutaþjónusta
55