Æskan - 01.11.1976, Blaðsíða 5
Blessuð jólin
Þau flytja mannheimi friðarmál
blessuó jólin. :,:
þau gleðja brosandi barnsins sál.
:,: blessuð jólin. :,:
Þau gera allt eins og ungt og nýtt
og allra heimkynni bjart og hlýtt
:,: blessuð jólin. :,:
Þau senda Ijómandi Ijósatré
:,: blessuö jólin. :,:
Þau signa fólkið þó fátækt sé
:,: blessuð jólin. :,:
Þau draga flöggin í fulla stöng
og fylla húsin með dýrðarsöng
:,: blessuð jólin.:,:
Og gamla fólkið með fögnuö sinn,
:,: blessuð jólin. :,:
þau láta yngjast í annað sinn,
:,: blessuð jólin. :,:
Þau hvísla guðsrödd í huga manns
um helga talþræöi kærleikans
:,: þlessuð jólin. :,:
Þau snerta græðandi sérhvert sár
:,: blessuð jólin.:,:
Þau gefa bros fyrir böl og tár
:,: blessuð jólin. :,:
Þau skapa voninni vængi og flug,
þau veita geislum í dapran hug
:,: blessuð jólin. :,:
Þau bera áhrif í ókunn lönd
:,: blessuð jólin :,:
og hlýjar óskir að hverri strönd
:,: blessuð jólin. :,:
Þau finna bústað hvers fjarlægs manns
og flytja kveðju frá vinum hans,
:,: blessuð jólin. :,:
Þau færa barninu bros og gjöf
:,: blessuð jólin :,:
þau signa hljóðlega hverja gröf
• :,: blessuð jólin :,:
þann sannleik flytja til sérhvers manns,
að sérhver annar er bróðir hans
:,: blessuð jólin. :,:
Þau rata sjálf í sérhvert hús
:,:blessuð jólin.:,:
Þau koma allsstaðar frjáls og fús
:,: blessuð jólin. :,:
Þau koma helst inn í hjarta manns,
sem hlýja ylgeislar kærleikans
:,: blessuð jólin. :,:
Þau bjóða velkomin börnin öll
:,: blessuð jólin. :,:
Þau koma jafnt inn í hreysi og höll
:,: blessuð jólin.:,:
Frájörð til himins þau byggi brú
úr blessun, kærleika, von og trú.
:,: blessuð jólin. :,:
Sig. Júl. Jóhannesson.
^SKAN
Hið nýja snið og efnisval hefur aflað blaðinu aukinna vinsælda
3