Æskan - 01.11.1976, Blaðsíða 23
Eflaust er jólastjarnan ein þeirra
pottaplantna sem flestir þekkja.
Óhætt er að fullyrða að hún hafi
áunnið sér hefðbundinn sess sem
jólaplanta eða öllu heldur sem nokk-
urs konar „jólaskraut". Jólastjarnan
hefur náð miklum vinsældum á
Vesturlöndum síðastliðinn áratug
vegna útlits síns og endingar og
gengur oft undir nafninu poinsettia í
erlendum málum. Ættkvíslin
Euphorbia tilheyrir mjólkurjurtaætt-
inni og telur um 900 tegundir sem
finnast víða um heim. öllum tegund-
unum er það sameiginlegt að þær
hafa mjólkurlitan safa sem kemur
fram viö minnsta sár á yfirhúð plantn-
anna. Mjólkursafi þessi er í flestum
tegundunum eitraður og getur valdið
bólgu og sviða í húðinni, einkanlega
koniist hann í sár.
Plöntum þessarar ættkvíslar má
reyndar skipta í tvo hópa. Ann-
ars vegar blaðplöntur sem
^ynda stór skærlit háblöð (bractea)
°9 hins vegar eins konar þykk-
blöðunga sem jafnvel geta líkst kakt-
Usum. Jólastjarnan tilheyrir hinum
fyrrnefndu og myndar hún krans stórra
háblaða sem oftast eru rauð, en til eru
afbrigði sem hafa bleik eða hvít
^áblöð. Blómin (cyatie) eru hins
Ve9ar óásjáleg og falla af fljótlega eftir
fgóvgun, en háblöðin geta enst mán-
uðum saman. Jólastjarnan er
skammdegisplanta, þ. e. hún myndar
ekki blóm nema daglengdin sé 12
^lst- eða minna og á blómmyndunar-
skeiði koma engin háblöð. Við
eölilega daglengd blómstrar jóla-
stjarnan ekki fyrr en um eða eftir jól
og því verður garðyrkjumaðurinn að
grípa til myrkvunar til þess aö hafa
söluhæfar plöntur frá miðjum
nóvember. Jólastjörnu er fjölgað með
græðlingum og má dýfa þeim í volgt
vatn til þess að minnka „blæðing-
una". Góð rótarmyndun fæst aðeins
við hátt raka- og hitastig og er því mjög
erfið í heimahúsum. Plantan er mjög
viökvæm fyrir öllum sveiflum i
umhverfi sínu og hana má undir eng-
um kringumstæðum skorta vatn. Best
er að vökva oft og þá minna í einu. Þar
eð vöxtur er nær enginn yfir hávet-
urinn þarf ekki að gefa jólastjörnunni
áburð nema svo sem einu sinni í
mánuði og þá einungis mjög veika
áburðarupplausn. Vilji fólk rækta
jólastjörnuna áfram eftir að hún missir
háblöðin er ráðlegt að setja hana á
svalan stað (15—17°C) seinni part
vetrar og varast ofþornun. Að vori
skal flytja plöntuna í bjartan glugga
og gefa áburð. Varast skal þó að gefa
of sterkt áburðarvatn vegna sviðnun-
arhættu. ( maí er hægt aó toppstýfa
plöntuna og fá þannig fleiri greinar.
eða nota nýju sprotana sem
græðlinga seinna. Þó skal á það bent
að með þessari aðferð fæst ekki sá
þétti vöxtur sem venjuleg jólastjarna
hefur vegna þess að garðyrkju-
maðurinn meöhöndlar plönturnar
með sérstöku vaxtartregðuefni til
þess að fyrirbyggja of mikinn
lengdarvöxt.
Lætur lítiö á si
Katharine Hepburn er orðin 67
ára gömul og lætur lítið á sjá. Hún
hefur að mestu hætt kvikmyndaleik
en er sprenghlægileg og spræk,
enda einkalíf hennar ól'kt því sem
flestar Hollywood kv.kmyndaleik-
konur hafa lifað. Hepburn var orð-
in fullorðin þegar hún varð íræg og
eftirsótt leikkona og hefur ekki
gengið úr einu misheppnuðu h;óna-
bandinu I annað um dagana. Á
myndinni er hún að skemmta sér á
hestbaki.
ÆSKAN — Þetta glæsilega blað á mikla framtíð fyrir sér
i
21