Æskan - 01.11.1976, Page 36
I eyjaklasanum, sem einu nafni nefnist Vestmannaeyjar, eru
15 eyjar, u. þ. b. 30 drangar og sker og 50—60 neðansjávar-
klakkar og boðar.
Allar hafa eyjarnar orðið til viö eldgos á hafsbotni á síðustu
10—12 þúsund árum. Eina byggða eyjan er Heimaey, sem
myndaðist við Helgafellsgos fyrir 5000 árum, eða um svipað
leyti og Egyptar byggðu sína fyrstu pýramída.
Vestmannaeyjar koma fyrst viö sögu landsins árið 875. Öll
þekkið þið frásögn Landnámu af þeim fóstbræðrum Ingólfi
Arnarsyni og Hjörleifi Hróðmarssyni, enda vel frá henni skýrt í
kennslubókum ykkar.
Um komu Ingólfs til Vestmannaeyja segir Landnáma:
„Þangað fóru þeir að leita þrælanna, og er Ingólfur kom þar,
sátu þrælarnir yfir mat á eiði því, er þar er í eyjunum. Þeir urðu
svo hræddir og felmtsfullir, er hinir komu að þeim, að þeir hlupu
allavega í skorur og fyrir björg. Þar voru þeir allir drepnir, og er
kennt við þá hvern fyrir sig, sem drepinn var. Þar heitir
Dufþakssker, er hann lést. Við þá eru eyjarnar kenndar, því
þeir voru vestmenn." Hér lýkur frásögn Landnámu.
Enn eru við lýði ýmis örnefni í Eyjum, sem minna á þessa
atburði.
Ekki eru allir sáttir við skýringu Landnámu á nafngift
Eyjanna, en ónum ber þó saman um, að Vestmannaeyjar hafi
þær heiti frá upphafi (slands byggðar.
Um fasta búsetu var ekki að ræða í Vestmannaeyjum fyi"r en
seint á landnámsöld, eða um árið 900. Áður var þar „veiðistöð,
en engra manna veturseta'; eins og segir í Landnámu. Á þessa
sést, að fyrstu landnemarnir voru fljótir að átta sig á því, að Þar
var auðvelt að afla matfanga.
Fyrsti landnámsmaðurinn í Vestmannaeyjum var Herjólfui"
Bárðarson og bjó hann í Herjólfsdal, þar sem enn má sjá rústir
af bæ hans, sem reistur var við annað af tveim vatnsbólum a
Heimaey. Síðar byggði Vilborg, dóttir hans, sér bæ við bit>
vatnsbólið. Til er skemmtileg saga af því, hvernig 2 hrafnar’
sem mjög voru hændir að Vilborgu, björguðu henni úr husi,
skömmu áður en grjótskriða færði það í kaf.
Snemma sumars, árið 1000, tóku þeir Gissur hvíti og Hjaltl
Skeggjason land í Vestmannaeyjum. Á skipi sínu höfðu Þeir
timbur og annað efni í kirkju, sem Ólafur Tryggvason, Noregs
konungur, gaf með þeim fyrirmælum, að kirkju skyldi reisa Þar
sem þeir kæmu fyrst að landi. Þeir reistu kirkjuna þar sem nU
heitir undir Stóru-Löngu, en þá hefur undirlendi verið þar maira
en nú er. Var þetta ein allra fyrsta kirkja landsins ef ekki su
fyrsta. Síðan héldu þeir Hjalti og Gissur ferð sinni áfram 1
Þingvalla, en þar var kristin trú lögtekin síðar þetta sama sum
ar.