Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1976, Qupperneq 69

Æskan - 01.11.1976, Qupperneq 69
 komst upp þriðja hlutann af glerfjallinu og hefði víst get- að komist alveg upp, hefði hann bara viljað það, en hann sneri við, því honum fannst það víst nóg í þetta skipti." ,,Æ, þetta hefði ég líka haft ósköp gaman af að sjá,“ sagði Pétur, ,,ég hef verið heima allan guðslangan daginn.“ „Já, þú ert nú ekki sá maður að þú hefðir mátt horfa á svona göfugt fólk,“ sagði bróðir hans. ,,Þú ert svo skelf- ing Ijótur, greyið mitt.“ Daginn eftir fór Páll aftur af stað til að horfa á kapp- reiðarnar, og Pétur bað pabba sinn að fá aö fara með honum, en það var ekki við það komandi, svo mikið var páll búinn að spilla karlinum við Pétur, þótt hann hefði bjargað enginu hans. ,,Jæja, ég fer þá eitthvað upp í heiði að rölta mér til skemmtunar," sagði Pétur. Þegar Páll var kominn að glerfjallinu leið nokkurstund, en svo tóku konungssynirnir og riddararnir að gera at- rennur að fjallinu aftur, — og þeir höfðu nú aðeins látið iárna hestana sína. En það dugði nú lítið, þeir komust ekki nokkurn spöl upp eftir fjallinu og þegar þeir voru búnir aö þreyta hestana sína, þá urðu þeir allir að hætta. þá fannst konunginum að hann yrði að auglýsa, að kappreiðarnar héldu áfram daginn eftir á sama tíma, ef kannski gengi betur þá. En svo hugsaði hann sig um aftur og fannst þá best að bíða svolítið við og vita hvort sá koparklæddi kæmi aftur, því hann hafði ekki sést þann daginn. Og hann sást bara alls ekki. En allt í einu kom maður þeysandi á gildum fáki, var sá miklu meiri en hinn hafði verið daginn áður. Þessi var í herklæðum úr silfri og glampaði hvítt á brynjuna. Hinir hrópuðu til hans, að 9agnslaust væri að reyna atreiðina upp eftir glerfjallinu, Því hann kæmist ekkert upp. En riddari þessi lét sem hann heyrði ekki til mannfjöldans, heldur hleypti hann hesti sínum beint aö glerfjallinu og upp eftir því, en þegar hann var kominn tvo þriðju hluta leiðarinnar upp á fjallið, sneri hann við aftur og reið niður. Þennan mann leist kóngsdóttur enn betur á en hinn koparbúna, og hún óskaði einskis eins heitt, og að hann kæmist upp, en þegar hún sá að hann sneri við aftur, kastaði hún öðru gulleplinu á eftir honum. Það féll niður í stígvél hans, og um leið og hann var kominn niður á jafnsléttu, sló hann í hest sinn og reið á brott og það svo hratt að eigi sáu menn gjörla hvert hann fór. Um kvöldið, er allir riddararnir voru kallaðir fyrir kon- ung og konungsdóttur, svo koma skyldi í Ijós, hvort nokkur hefði eplið meðferðis, þá kom einn af öðrum, en allir voru þeir vita gulleplalausir. — Og eins og fyrri dag- inn kom Páll heim og tók að guma mjög af hve manninum í silfurherklæðunum hefði gengið vel atrennan að berg- inu. ,,Já, það var nú hestamaður í lagi," sagði hann. Og þvílíkan stólpagrip sem reiðskjóta hans hafði hann aldrei séð. ,,Æ, það heföi verið gaman að sjá hann,“ sagði Pétur. ,,Já, það var nú ekki maöur fyrir þig að horfa á, karl rninn," sagði bróðir hans. ,,En ég sá hannl" Þriðja daginn fór allt á sömu leið og fyrri dagana tvo. Pétur vildi endilega fá að koma með til þess að sjá ridd- arana, en feðgarnir vildu ekki hafa hann fremur en fyrri daginn, og þegar þeir komu að glerfjallinu, var þegar byrjað kapphlaupið, en það var nú reyndar ekki mikið kapphlaup, því það komst ekki einn einasti tvær álnir upp eftir fjallinu, hvað þá heldur lengra. Allir biðu nú riddar- ans í silfurbrynjunni, en ekkert sást til hans. Að lokum kom þó ókunnur riddari á afskaplega stórum og fjörug- um hesti, og var sá í herklæðum úr skíragulli og stafaði af honum miklum Ijóma á alla vegu. Hann reið beint að glerfjallinu og upp það, sem fugl flygi, svo hratt, að konungsdóttir hafði ekki einu sinni tíma til þess aö óska sér, að hann kæmist upp, fyrr en hann var kominn til hennar. Og um leið og hann var kominn upp. tók hann þriðja gulleplið úr kjöltu konungsdóttur, svo sneri hann ÆSKAN — Nú eru áramót og þá er tækifæri að byrja að kaupa blaðið 67
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.