Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1976, Side 90

Æskan - 01.11.1976, Side 90
Velvakandi, Morgunblaðið. Faðir skrifar: ,,Velvakandi góður! Þegar ég var strákur, fékk ég alltaf barnablaðið Æskuna og beið hvers eintaks með mikilli eftirvæntingu. Eins og að lík- um lætur hætti ég að lesa blaðið, þegar ég stálpaðist — og það var ekki fyrr en mín börn tóku að stálpast, að ég endurnýjaði kynni mín við Æskuna, því ég gaf þeim áskrift strax og þau fór að stauta. Ég varð mjög ánægður að uppgötva, að Æskan er enn jafn ung, og ég held, að hún sé miklu frískari nú en áður. Ritstjórinn, Grímur Engil- berts, vinnur mikið og vel þakkað starf fyrir börnin í landinu. Æskan er aftur orðin eitt vinsælasta lesefnið á mínu heimili — og sjálfur er ég jafnvel farinn að glugga í hana mér til ánægju. Æskan mun nú vera gefin út í fleiri eintökum en nokkurt annaö tímarit á íslandi — og mér finnst það ekkert undarlegt. ESKRN ÆSKAN — Auðsýnið kennurum ykkar auðsveipni ogvirðingu Berðu ritstjóra og öðrum aðstandendum Æskunnar mínar bestu kveðjur." Alþýðumaðurinn, Akureyri, skrifar: Barnablaðið Æskan, gefið út af Stórstúku íslands, rit- stjóri Grfmur Engilberts, er eitt af þeim ritum, sem hingað berast inn á skrifstofuna. Yngri tók maður því tveim höndum, og það hefur lengi verið gott lesefni fyrir æsku- fólk enda á það marga vini. Foreldrar, sem eiga börn á bernskuskeiði, ættu að velja þeim rit sem þetta til að þroska smekk og hæfni þeirra til að leita þess, sém best er af lesefni. Æskan svíkur engan. Mánudagsblaðið skrifar: Þótt oft heyrist að íslensk blöð standi kollegum sínum í nágrannalöndunum að baki, er þó hægt að fullyrða að eitt er hér betra og fullkomnara en annars staðar gerist, en þaó er barnablaðið Æskan, ritstjóri: Grímur Engilberts. Það er furðulegt hve gott þetta blað er, bæði frá því sjónarmiði að vera blað fyrir börn og frá sjónarmiði al- mennrar fræöslu og skemmtilegheita. Barna- blaðið Æskan á sér orðið langa sögu, er elsta barna- blað á Norðurlöndum ef ég man rétt, en á því eru síður en svo ellimörk: Hefur þvert á móti haldið því að vera vand- að barnablað og síungt, ekki síst eftir að Grímur tók við rit- stjórn þess. í nágrannalöndum okkar hefur þróunin orðið sú, að blöð svipuð Æskunni hafa átt erfitt uppdráttar og útgáfan snúist í þá átt að gefa út bæklinga af Mikka mús og fleirum álíka, sem eru góðir á sína vísu. íslenskri blaðamennsku er sómi að Æskunni og á Grím- ur ritstjóri hennar Engilberts mikið lof skilið. Jón Víðir Sigurðsson, Reyðarfirði, skrifar: Kæra Æska! Um leið og ég sendi greiöslu fyrir blaðið, vil ég þakka fyrir hinar góðu greinar og sögur, sem blaðið birtir. Nú er ég farinn að geta lesið í henni sjálfur. Svo óska ég þér alls hins besta í framtíðinni, lifðu heil. Jóhanna Hermannsdóttir, Akranesi, skrifar: Kæra Æska! Ég bíð með óþreyju eftir næsta blaði. Mér finnst að Æskan eigi að komast inn á hvert barnaheimili landsins. Ég óska þér góðs gengis á komandi árum. Þóra Bjarney Jónsdóttir, Árnessýslu, skrifar: Kæra Æska! Ég hlakka alltaf mikið til þegar Æskan kemur, mér finnst svo gaman aö öllum myndunum og sögunuhi- Þakka þér fyrir þetta 9° a starf í þágu okkar barnanna 1 þessu landi. Snjójaug Óskarsdótt"-. Árnessýslu, skrifar: Kasra Æska! Ég er 14 ára °9 ha lesið þig síðan ég byrjaði a geta lesið, en áður varst Þ lesin fyrir mig. Ég þakka Pe^ fyrir þitt góða og skemmtile9 88

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.