Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1977, Page 40

Æskan - 01.10.1977, Page 40
Garnendanum er stungið niður um gatið og garnið látið mynda lykkjur um prjónana. Fyrst holaröu tappann að innan, svo að í honum sé á að giska 1 cm breitt gat, svo seturðu títuprjónana í hann að ofan, þannig að þeir myndi Fyrsta lykkjan. hring efst. Gættu þess að hafa bilið milli prjónanna jafnt. Þá getur verkið hafist. Þú vefur garninu um einn prjóninn, svo um þann næsta o. s. frv. þangað til lykkja er um hvern einasta prjón. Það verður þó að vera svo mikiö eftir af garninu, að endinn standi niður úr gatinu á tappanum. Garnið er dregið gegnum fyrstu lykkjuna og henni lyft af prjóninum. Það er haldið áfram að prjóna. Nú seturðu hinn endann fyrir framan fremsta títu- prjóninn á ytri brúninni og notar stoppumálina til að lyfta lykkjunni, draga hana yfir garnið og setja aftur á prjóninn. Þá ertu með nýja lykkju og hún er alveg eins og prjónuð lykkja. Á næsta títuprjóni er farið eins að, o. s. frv. frá prjóni til prjóns. Þegar búið er að „prjóna“ eða „vefa“ á alla prjónana fimm er dregið vel í endann, sem hangir niður um gatiö á tappanum. Svo kemur næsta umferð og hún er alveg eins. Þegar þú hefur haldið þessu áfram smástund og ekki gleymt að toga vel í end- ann, sem lafir niöur, ferðu að sjá árangur erfiðisins. T aumurirm kemur n'röur úr tappanum. Hann er þéttur og lítur út eins og hann sé prjónaður — og það er hann líka, þó að prjónar hafi ekki veriö notaðir. Ef þú ert orðin leið á fyrsta litnum, eða garnið er búið, geturðu skipt um lit eins oft og þú vilt því að engin takmörk eru sett því, hvað beislið má vera marglitt. Þegar taumur- inn er orðinn eins langur og æskilegt er talið, er garnið dregið gegnum allar lykkjurnar fimm og það heitir að fella af. Nú þarf að gera lykkju á hvorn enda til að stinga handleggjunum inn Nú er beislið tilbúið.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.