Æskan - 01.10.1977, Blaðsíða 45
Skrýtlur
Ameríkani sýndi einu sinni
enskum vini sínum Niagara-
fossana. — Finnst þér þeir ekki
stórmerkilegir? sþurði Amerí-
kaninn.
Jú, svaraði Bretinn, en einu
sinni sá ég hænu með staurfót
heima í Englandi.
Konan mín skilur mig ekki.
En þín?
— Mér vitanlega hafið þið
aldrei hist.
Guð hjálpi mér — en sú
hætta, sem ég hef verið í.
Hliðið hefur staðið opið í aila
nótt!
Skoskur landeigandi var
kosinn í skólanefndina og í til-
efni af því kom hann eitt sinn í
heimsókn í skólann til þess að
reyna nemendurna.
Jæja, drengir, sagði hann,
■ .getur einhver ykkar sagt mér,
hvað milljón er?“
Nemendurnir svöruðu svo
honum líkaði.
Nú, en getur þá einhver ykkar
sagt mér hvað ekkert er?“
Það var nokkur þögn, þar til
'itill drengur stóð upp og sagði:
,,Það er það, sem þér gáfuð
aiér í gær fyrir að halda í hest-
1. Marsvín eru elskuleg húsdýr, en það verður að gæta þeirra vel. Marsvín, sem vel er
farió með, geta orðið þriggja ára.
2. Litur marsvína er breytilegur, þó að yfirleitt sé hann brúnn, hvítur, svartur og hvítur,
eóa albrúnn. Tvílit marsvín hafa greinilegar litaskiptingar.
3. Takið þessi viðkvæmu dýr alltaf upp eins og sýnt er á myndinni að ofan. Takið undir
hnakkann með annarri hendi og styðjið undir fæturna með hinni.
4. Marsvínsungar geta séð frá fæðingu og því varið sig strax. Móðirin hefur ungana
yfirleitt aðeins á brjósti í hálfan mánuð.
5. Hafið aldrei þröngt um marsvín, og það er gott að hafa vírbotn rétt fyrir ofan bakka,
sem hægt er að taka úr búrinu. Þá er unnt að hreinsa búrið, án þess aó ónáða dýrin.
6. Marsvín eru fullvaxta níu mánaða. Þau lifa helst á grænmeti, svo sem káli og salati.