Æskan - 01.10.1977, Side 43
Færeysk saaa um dveraa
Dvergar eru lágir og gildir, skegg-
lausir, en þó ekki ófríðir ásýndum.
þeir búa í stórum steinum eða í hólum
undir klettum; sllkir dvergasteinar eru
víðs vegar um Færeyjar.
Dvergar eru gæflyndir en þola ekki
illdeilur í nánd við bústaði sína því að
Þá snýst í þeim og þeir flytjast burtu
Þaðan í gremju miki.lli; þess vegna er
stóri dvergasteinninn í Skúfey klofinn
í tvennt, því að drengir tveir sem
gættu nautgripa rifust með Ijótu orð-
bragði og flugust á; þá flýðu dverg-
arnir og sprengdu steininn.
Dvergar eru allra smiða slyngastir
og af þeim lærðu menn fyrst að herða
stál í eldi og vatni, en áður urðu þeir
að teygja járnið og laga með því að
kaldhamra það.
Smíðatól dverganna vinna af
sjálfsdáðum en öll orka þeirra sjálfra
er falin í beltunum sem þeir girðast; ef
einhver nær beltinu af dvergi verður
dvergurinn ósjálfbjarga og þá er hægt
að fá hann til að smíða hvað sem er og
9era góða gripi, því að hann vill allt til
vinna að fá beltið aftur.
,Undir steinunum sést oft aska, sem
sópað hefur verið út úr smiðjum
þeifra.
í Gásadal á Vogey stendur klettur
sem dvergar búa í; heyrist oft til þeirra
þegar þeir eru að smíðum. Fátækur
maður var eitt sinn staddur norður í
Tungu og var að bera saman mó. Sá
hann þá klettinn standa opinn og
dvergana að smíðum inni fyrir. Gekk
hann nær til að hyggja að þessu og
komu þá dvergarnir út í dyrnar og
sögðu við hann:
— Framhleypinn ertu, þótt fátækur
sért, en eiga máttu samt hnífkutann
þann arna — og um leið fleygðu þeir í
út til hans hníf sem var svo beittur að
hann sneið allt sem í vatn brygði. —
(Færeysk þjóðsaga).
ÆSKAN — Leyfðu aldrei, að neinum sé refsað í þinn stað
1. Krjúptu niður á fjóra fætur, lófar á gólfi.
Hvíldarstelling, anda rólega.
2. Skjótiö upp krýppu, beygið bakið upp eins
hiikió og þið getið. Höfuðið fer niður á milli arm-
anna.
3. Sveigió hrygginn nióur, hægt og rólega, og
komið svo aftur í stöðu 1. Gerið þessar æfingar
4—5 sinnum, ætíó hægt.
Leikfimi í heimahúsum
Hryqqæfinqar