Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1989, Side 18

Æskan - 01.12.1989, Side 18
Það gerðist margt fyndið Þegar ég spyr hvort eitthvað fyndið hafi gerst þegar verið var að vinna þætt- ina segir Gaggæ „Það gerðist nú margt fyndið en ég man bara ekki eftir neinu núna. Þetta var allt svo skemmtilegt.“ Manni fer að hlæja þegar hann rifjar upp heimferðina frá Jökulsárlóni. Það var 8 klukkustunda ferð með áætlunarbíl: | „Við vorum svo þreytt að við sofnuð- um. Við Högni sváfum saman í aftasta sæt- inu og í svefninum flæktum við fótleggjun- um saman. Svo kom Gagga og settist ofan á fæturna á okkur alla í flækju og það var ferlega vont!“ Högni rifjar upp þegar hann ók á Ijós- myndarann: „Ég fótbraut mig næstum því einu sinni þegar ég ók á stein," segir hann. „í annað skipti ók ég kassabílnum beint á Ijósmynd- arann. Hann meiddi sig og ég líka. Síðan fékk ég einu sinni ruslatunnu í höfuðið og það | kom gat. Ég veit ekkert af hverju hún valt.“ í þáttunum leika fleiri krakkar en þau, þeirra á meðal Ingólfur og Rajiv, sem báð- ir eru í Varmárskóla, og svo bróðir Göggu, Ari Klængur, sem leikur í kassa- bílaatriðinu: „Hann leikur pönkara," segir Gagga. „Það atriði var svolítið erfitt því að mér fannst rosalega erfitt að ýta Högna í kassabílnum." Stundum nennti hundurinn Sindri ekki að leika! En í Pappírs-Pésa þáttunum koma fleiri við sögu. Mikið hlutverk leikur til dæmis hundur sem heitir Sindri: „Ég á að eiga Sindra í myndunum," seg- ir Gagga. „Hann er bara svo góður við okkur öll að það leit aldrei út fyrir að ég ætti hann ein! Ég er vön hundum því að ég á sjálf hund sem heitir Laxi.“ „Stundum þegar Sindri átti að standa þá lá hann bara í leti og nennti ekkert að leika!“ segir Högni. „Það var mjög gaman að hafa Sindra með því að hann er svo góður hundur.“ „Mér fannst fyndið atriðið þegar Papp- írs-Pési situr á bakinu á Sindra!“ segir Manni. Þau segja að Pappírs-Pési hafi orðið þannig til að krakkarnir hafi ekki viljað vera með Mannæ „Við vorum að hjóla „í annað skipti ók ég kassabílnum beint á Ijósmyndarann. . .“ fyrir utan gluggann hjá honum og ulluðum á hann,“ segir Högni. „Síðan fórum við í burtu og þá varð Manni leiður. Honum leiddist svo mikið að hann teiknaði papp- írsstrák á blað. Síðan fór hann að lesa i bók en á meðan lifnaði Pappírs-Pési við. Þegar Manni tók eftir því urðu þeir góðir vinir og Pappírs-Pési fer með okkur út um allt í myndunum." Langskemmtilegast við Jökulsárlón Þau hafa hvert sína skoðun á því hvaða atriði sé skemmtilegast af þáttunum sem sýndir verða eftir áramótin: '< „Mér fannst skemmtilegast þegar ég, sem leik Óla, átti að sprauta á Magnús Ól- afsson sem leikur Bjössa Bollu,“ segir Högni. „Ég átti að vera að stríða honum í l einu atriðinu með því að sprauta á hann ' vatni úr slöngu. Það fannst mér æðislegt, 18 Æskan

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.